NIB lánar til Orkuveitunni rúma 4,6 milljarða króna

Forstjóri Orkuveitunnar segir að með því að auka framleiðslugetu Hellisheiðarvirkjunar sé tryggð örugg, skilvirk og áreiðanleg orkuframleiðsla um leið og nýttar séu á ábyrgan máta verðmætar, hreinar jarðhitaauðlindir Íslands.

Fulltrúar NIB og Orkuveitunnar.
Fulltrúar NIB og Orkuveitunnar. Frá vinstri: Tiina Kuusela og Dmitri Kouznetsov frá NIB, Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar, Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON Power og Snorri Hafsteinn Þorkelsson, fjármálastjóri Orkuveitunnar. Mynd/Helga Björg Pétursdóttir

Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) og Orkuveita Reykjavíkur hafa undirritað 10 ára lánasamning að fjárhæð 4.625 milljónir króna (32 milljónir evra) til fjármögnunar framkvæmda hjá ON Power við Hellisheiðarvirkjun á árunum 2025–2027.

Fram kemur í tilkynningu að verkefnið feli í sér aukna varmaframleiðslu til húshitunar, borun nýrrar vinnsluholu sem og byggingu nýs viðhalds- og geymsluhúsnæðis. Heildarkostnaður verkefnisins er sagður nema 6.338 milljónum króna.

„Íbúum Reykjavíkur hefur fjölgað jafnt og þétt síðasta áratug, og gert er ráð fyrir að fjöldinn muni halda áfram að aukast næsta áratuginn. Fyrirhugaðar fjárfestingar munu auka öryggi framboðs á heitu vatni í kjölfar aukinnar eftirspurnar,“ segir í tilkynningu Orkuveitunnar.

Varmaframleiðslugeta virkjunarinnar er sögð koma til með að aukast úr 220 MW í 345 MW.

Gert er ráð fyrir að þessi aukna geta skili að jafnaði 50.000–100.000 MWh af endurnýjanlegum varma á álagstímum í upphafi, með aukinni nýtingu eftir því sem byggðin á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að stækka.

„Að auki er áætlað að nýja vinnsluholan skili 5 MW í raforku (MWe).“

Haft er eftir Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að fjárfestingin sé mikilvægt skref til að styrkja þol og getu jarðhitakerfa til að mæta vaxandi eftirspurn á höfuðborgarsvæðinu.

Þar sem þörf fyrir heitt vatn og raforku aukist ár frá ári sé nauðsynlegt að fjárfesta í sjálfbærum og framtíðarþolnum innviðum.

„Með því að auka framleiðslugetu Hellisheiðarvirkjunar tryggjum við örugga, skilvirka og áreiðanlega orkuframleiðslu til samfélagsins og nýtum jafnframt verðmætar, hreinar jarðhitaauðlindir Íslands á ábyrgan hátt,“ segir Sævar.

Þá bendir André Küüsvek, stjórnarformaður og forstjóri NIB, á að hámarksþörf fyrir heitt vatn í Reykjavík aukist árlega um 120 lítra á sekúndu.

„Það er okkur sönn ánægja að styðja við Orkuveitu Reykjavíkur, sem hefur verið viðskiptavinur NIB lengi, þar sem fyrirtækið heldur áfram að efla afhendingaröryggi með fjárfestingum í jarðhitainnviðum til að mæta vaxandi eftirspurn,“ segir hann.