Tekjur dagblaða, vikublaða og tímarita eru nú innan við helmingur þeirra tekna sem sömu fjölmiðlar höfðu 2010. Á sama tíma hafa tekjur útvarps, sjónvarps, og vefmiðla aukist umtalsvert. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Hagstofu Íslands á tekjum fjölmiðla.
Fram kemur að tekjur fjölmiðla hafi árið 2024 numið 30,3 milljörðum króna.
„Þar af voru tekjur af notendum tæpir 18,7 milljarðar króna og auglýsingatekjur 11,6 milljarðar króna.“
Það ár drógust fjölmiðlatekjur saman um þrjú prósent frá fyrra ári. reiknað á föstu verðlagi, en frá árinu 2010 eru fjölmiðlatekjur hins vegar sagðar hafa aukist um fjögur prósent.
„Aukningin hefur verið dregin áfram af tekjum af notendum sem hafa aukist um 12 prósent frá 2010 á sama tíma tíma og auglýsingatekjur hafa dregist saman um 8 prósent reiknað á verðlagi ársins 2024.“
Fast að níu af hverjum tíu krónum af tekjum fjölmiðla eru sagðar hafa runnið til fimm rekstaraðila. Hlutdeild Ríkisútvarpsins var tæplega 29 prósent 2024.
„Lætur því nærri að þrjár krónur af hverjum tíu af tekjum fjölmiðla hafi runnið til Ríkisútvarpsins,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar.
Þá segir að tekjuþróunin sé afar ólík eftir miðlum.
„Prentmiðlar, dag- og vikublöð og tímarit og önnur blöð hafa búið við umtalsverðan tekjusamdrátt um langt árabil.“
Á einum og hálfum áratug eru tekjur dag- og vikublaða sagðar hafa dregist saman um 34 prósent. Þar muni mestu um 35 prósenta samdrátt auglýsingatekna, samanborið við tæplega 28 prósent minni tekjur af notendum.
„Yfir sama árabil hefur verið um fjórðungs samdráttur í tekjum tímarita og annarra blaða.“
Tekjur annarra fjölmiðla eru sagðar hafa aukist á sama tíma, um 23 prósent í hljóðvarpi og 18 prósent hjá sjónvarpi. Þá eru tekjur vefmiðla sagðar hafa fast að því fjórfaldast.
Þá hafi tekjur hlaðvarps nífaldast á fimm ára tímabili frá 2020.

Þá endurspeglist breytt fjölmiðlaneysla almennings undanfarin ár að nokkru í breyttri skiptingu tekna á milli fjölmiðla.
„Árið 2024 féllu 55 prósent tekna fjölmiðla til sjónvarps og 15 prósent til hljóðvarps. Hlutdeild dag- og vikublaða í tekjum fjölmiðla nam 12 prósentum eða sama hlutfall og vefmiðla. Hlutdeild tímarita og annarra blaða og hlaðvarps er næsta takmörkuð í samanburði eða 3 og 2 prósent.“
Hagstofan bendir á að frá 2010 hafi hlutdeild dag- og vikublaða í fjölmiðlatekjum minnkað úr 27 prósentum í 12 prósent og tímarita og annarra blaða úr 7 prósentum í 3 prósent. Á sama tíma hafi hlutur annarra miðla í fjölmiðlatekjum aukist, líkt og sjá má í töflunni hér til hliðar ofan.
Greininguna og frekari útlistun má finna á vef Hagstofunnar.