Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus af Orkla Snacks

Nói Síríus hf. var stofnað árið 1920 og er eitt þekktasta framleiðslu- og markaðsfyrirtæki landsins.

Rolf Arnljot Strøm, fjármálastjóri Orkla Snacks, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríusar og Markús Hörður Árnason, fjárfestingarstjóri hjá Alfa Framtaki.
Frá vinstri: Rolf Arnljot Strøm, fjármálastjóri Orkla Snacks, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríusar og Markús Hörður Árnason, fjárfestingarstjóri Alfa Framtaks. Mynd/aðsend

AF3, sjóður í rekstri Alfa Framtaks, hefur gengið frá samkomulagi við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríusi. Við kaupin færist Nói Síríus aftur í innlenda eigu eftir árangursríkan tíma undir eignarhaldi Orkla Snacks, að því er segir í tilkynningu.

Fram kemur að viðskiptin séu háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

„Nói Síríus hf. var stofnað árið 1920 og er eitt þekktasta framleiðslu- og markaðsfyrirtæki landsins. Fyrirtækið hefur frá stofnun sinnt framleiðslu og dreifingu á súkkulaði og öðrum matvörum,“ segir í tilkynningunni.

Orkla Snacks er sagt hafa umbreytt fyrirtækinu úr rótgrónu fjölskyldufyrirtæki í framsýnt framleiðslufyrirtæki með skýra áherslu á gæði og sterk vörumerki. 

„Alfa Framtak mun geta byggt á þessum sterka grunni og stutt við næsta vaxtarskeið félagsins.“

Um Alfa Framtak segir að félagið reki sérhæfða sjóði og hafi langa reynslu af fjárfestingum, að styðji við vöxt og af því að leiða umbreytingar.

„Markmið Alfa Framtaks er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi við sölu og þannig skilja eftir sig jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.“

Í rekstri Alfa Framtaks eru eru þrír sjóðir, AF1, AF2 og AF3 og áskriftarloforð sem samtals nema um 45 milljörðum króna, að því er segir í tilkynningunni.

Fram kemur að fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og LOGOS hafi verið ráðgjafar seljanda í viðskiptunum á meðan ráðgjafar kaupanda hafi verið BBA//FJELDCO og KPMG.