Fossar fjárfestingarbanki hafa ráðið Magnús Örn Guðmundsson í stöðu forstöðumanns einkabankaþjónustu bankans.
„Frá árinu 2008 til 2024 starfaði Magnús hjá Sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni hf. Þar var hann sjóðstjóri og forstöðumaður blandaðra fjárfestingarsjóða og stýrði meðal annars stofnun, uppbyggingu, eignastýringu og sölu á sjóðum Stefnis fyrir einkabankaþjónustu. Frá árinu 2020 leiddi hann svið hlutabréfa og blandaðra sjóða Stefnis í tæplega fimm ár,“ segir í tilkynningu.
Áður hafi Magnús meðal annars starfað sem sérfræðingur á fjármálasviði Fidelity Institutional Asset Management í Boston og sem sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Kaupþingi.
„Frá 2025 hefur Magnús Örn starfað sjálfstætt við ráðgjöf og fjárfestingar auk þess að sinna bæjarstjórnarmálum á Seltjarnarnesi. Þar hefur hann samhliða öðrum störfum setið í bæjarstjórn frá 2015 og er formaður bæjarráðs fram að kosningum núna í maí. Hann hefur jafnframt tekið að sér margvísleg trúnaðarstörf á vettvangi stjórnmála.“
Haft er eftir Steingrími Arnari Finnssyni, forstjóra Fossa fjárfestingarbanka, að Magnús Örn sé boðinn hjartanlega velkominn til starfa. Reynsla hans komi til með að nýtast vel við eflingu einkabankaþjónustu Fossa, þar sem frá upphafi hafi verið lögð rík áhersla á faglega og persónulega þjónustu við fjárfesta sem vilji vandaða umsjón með eignum sínum.
Þá segist Magnús Örn fullur tilhlökkunar að ganga til liðs við áræðinn hóp starfsfólks Fossa og taka þátt í metnaðarfullri vegferð þar sem við blasi mörg tækifæri.
„Það verður bæði ögrandi og skemmtilegt að koma nú að áframhaldandi mótun og uppbygginu á úrvals einkabankaþjónustu fyrir einstaklinga, fjárfestingarfélög og fyrirtæki eftir nær 20 ár í stýringu sjóða. Fram undan eru spennandi verkefni í samstarfi við öfluga samstæðu Skaga,“ segir hann.
Magnús Örn er sagður með MBA gráðu með áherslu á fjármál fyrirtækja frá Northeastern University í Boston auk þess að vera viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með próf í verðbréfaviðskiptum.