Íris Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til Samtaka iðnaðarins (SI) sem viðskiptastjóri á mannvirkjasviði samtakanna. Fram kemur í tilkynningu SI að hún hafi þegar hafið störf.
„Íris er tengiliður fyrirtækja og félaga sem starfa á sviði innviðauppbyggingar, hönnunar og ráðgjafar. Starfið er hluti af mikilvægu hagsmunastarfi Samtaka iðnaðarins sem hefur það markmið að efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar og styðja fyrirtæki til að nýta tækifærin og að taka forystu á tímum breytinga,“ segir í tilkynningu samtakanna.
Fram kemur að Íris hafi áður verið lögfræðingur og sérfræðingur í regluverki mannvirkjagerðar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Eins hafi hún starfaði sem lögfræðingur skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar og þar áður hjá Brunavörnum Suðurnesja.
Þá er tiltekið að Íris sé með BA-gráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík.