Gunnar Ingi ráðinn sviðsstjóri þjónustu hjá Dögum

Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson
Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson, sviðsstjóri þjónustu hjá Dögum. Mynd/Dagar

Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri þjónustu hjá hreingerninga- og fasteignaumsjónarfyrirtækinu Dögum. Fram kemur í tilkynningu að hann hafi hafið störf í lok síðasta árs og þegar komið að mótun framtíðarsýnar og áframhaldandi þróun þjónustusviðs félagsins.

„Gunnar býr að meira en 20 ára reynslu af þróun og innleiðingu stafrænna lausna á sviði þjónustu og tækni, meðal annars hjá Stafrænu Íslandi og Origo. Þá hefur hann starfað í rúman áratug í ferðaþjónustu og hefur víðtæka þekkingu á þjónustustjórnun, rekstri og umbótaverkefnum,“ segir í tilkynningunni.

Þá er Gunnar sagður reyndur stjórnandi og fyrirlesari sem leggi áherslu á sterka liðsheild, markvissa þjónustustjórnun og stöðugar umbætur.

Brynhildur Guðmundsdóttir, forstjóri Daga, segir í tilkynningunni að mikil ánægja sé með að hafa fengið Gunnar til liðs við fyrirtækið.

„Hann kemur með dýrmæta reynslu, skýra sýn og kraft til að efla þjónustu Daga enn frekar. Þekking hans á nýtingu tækni til að auka skilvirkni og styrkja upplifun viðskiptavina mun skipta okkur miklu máli á næstu misserum,“ segir hún.