Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri móðurfélags Ölgerðarinnar

Bera var nafn móður Egils Skallagrímssonar og jafnframt dóttur hans. Nafn móðurfélagsins er þannig sagt hafa sögulega og skýra tengingu við Ölgerðina Egil Skallagrímsson.

Jón Þorsteinn Oddleifsson forstjóri Beru.
Jón Þorsteinn Oddleifsson er nýr forstjóri Beru. Mynd/aðsend-samsett

Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, Danól, Kjarnavara, Gæðabaksturs og fleiri félaga.  Í tilkynningu félagsins kemur fram að Jón Þorsteinn hafi verið framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar síðustu ár. 

Haft er eftir Jóni Þorsteini að gríðarlega spennandi tækifæri sé að taka við starfinu hjá þessu öfluga fyrirtæki. 

„Síðustu ár hef ég í starfi mínu hjá Ölgerðinni komið æ meir að daglegum rekstri fyrirtækisins og samstæðunnar og ég þekki því vel innviði, starfsemi og menningu þessara fyrirtækja. Framundan eru fjölmörg spennandi tækifæri og ég veit að Bera mun veita dótturfélögunum svigrúm til vaxtar og þróunar á öllum sviðum,“ segir hann. 

Fram kemur að  Jón Þorsteinn sé fæddur árið 1975, stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni og hagfræðingur með framhaldspróf í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands.

„Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði, sinnti viðskiptaþróun hjá Landsbréfum, var fjármálastjóri nýja Landsbankans og þar áður var hann forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans. Hann hefur einnig sinnt fjármálaráðgjöf til fyrirtækja og stofnana sem sjálfstæður ráðgjafi.“ 

Þá er áréttað að undir Beru, móðurfélag samstæðunnar, verði meðal annars mannauðssvið, stafræn þróun og rekstur tölvukerfa, rekstur vöruhúsa, innkaup á aðföngum og þjónustu, þjónusta á fjármálasviði og fleira til. 

„Bera var nafn móður Egils Skallagrímssonar og jafnframt dóttur hans. Nafnið hefur því sögulega og skýra tengingu við Ölgerðina Egil Skallagrímsson,“ segir í tilkynningu félagsins.