Fjárfestingarsjóður lífeyristrygginga Kanada (CPP Investments) og alþjóðlega netinnviða og gagnaversfyrirtækið Equinix hafa keypt gagnaversfyrirtækið atNorth á 4 milljarða bandaríkjadala, eða sem svarar um 485 milljörðum íslenskra króna. Fyrri eigandi atNorth var fjárfestingafyrirtækið Partners Group.
Í tilkynningu á vef atNorth er salan sögð með hefðbundnum fyrirvörum, svo sem um leyfi eftirlitsaðila.
Kaupin eru sögð til þess fallin að styðja vöxt atNorth á Norðurlöndum, þar sem fyrirtækið rekur átta gagnaver, þar af þrjú á Íslandi. Þá er fyrirtækið með fleiri gagnaver í byggingu í Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku, auk frekari stækkunaráforma.
Kaupin eru sögð styðja við áframhaldandi hraða uppbyggingu atNorth.
„CPP Investments fjárfestir um það bil 1,6 milljörðum dala og fær um 60% eignarhlut, á meðan Equinix kemur til með að eiga um 40%.“
Nýir eigendur hafa jafnframt sammælst um aukna fjármögnun til atNorth sem nemur 4,2 milljörðum bandaríkjadala, eða sem svarar 509 milljörðum íslenskra króna.
Haft er eftir Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni, forstjóra atNorth að salan sé endurspegli með afgerandi hætti styrk atNorth og leiðandi stöðu á Norðurlöndum, auk þess sem hún undirstriki mikilvægi Norðurlanda sem vaxandi miðstöðvar gervigreindar í Evrópu.
Hann segist stoltur kynna kaflaskilin í sögu atNorth og bjóða CPP Investments og Equinix velkomin. Nýju eignarhaldi fylgi aðgangur að fjármagni, alþjóðlegum fyrirtækjatengingum, hyperscale‑viðskiptavinum og öflugri aðfangakeðju, sem þurfi til að vaxa hratt.
„Stefna okkar er óbreytt með styrkum rótum á Norðurlöndum og við komum til með að starfa áfram undir vörumerki atNorth, með tryggð við skuldbindingar okkar á hverjum stað og þær áherslur og gildi sem hafa einkennt árangur okkar hingað til,“ segir hann.