Gera ráð fyrir lítilsháttar verðbólguhjöðnun í febrúar

Verðbólga hefur verið yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans frá miðju ári 2020.

Föt á rekka í fatabúð.
Mynd/Perry Merrity II á Unsplash

Verðbólga hjaðnar lítillega í febrúar gangi eftir ný spá Greiningar Íslandsbanka og hjaðnar úr 5,2 prósentum í 4,9 prósent. Gert er ráð fyrir að vísitala neysluverð hækki um 0,7 prósent milli janúar og febrúar.

„Hækkun vísitölunnar skýrist einkum af því að vetrarútsölur ganga til baka og flugfargjöld hækka,“ segir í spánni.

Í spá bankans er jafnframt er sagt útlit fyrir áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði en verðbólga komi þó áfram til með að mælast yfir efri vikmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans, er eru við fjögur prósent.

„Lokahnykkur að verðbólgumarkmiði mun reynast ansi erfiður.“

Dregur úr útsöluáhrifum

Útsölurnar í janúar eru sagðar hafa verið í takti við það sem gert var ráð fyrir í fyrri spá.

„Líklegt er að þær gangi til baka nú í febrúar, þó hluti áhrifanna af útsölulokum dragist til næsta mánaðar.“

Þá er gert ráð fyrir smávægilegri hækkun húsnæðisliðar og koma þar inn að hluta áhrif af hækkun sorphirðugjalda í febrúar, en í mánuðinum hafi gjaldskrár margra sveitarfélaga tekið breytingum.

Þá verði einhver áhrif af árstíðabundinni hækkun flugfargjalda, en eftir óvænta eitt prósent hækkun á matvöru í síðasta mánuði er gerir Greining Íslandsbanka ráð fyrir hægari hækkunum á þeim lið í mánuðinum.

„Verðbólga hefur verið yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans frá miðju ári 2020 og virðist lokahnykkurinn að verðbólgumarkmiðinu ætla að reynast erfiður.“

Í spá bankans er ekki gert ráð fyrir að verðbólga nái markmiði á næstu misserum, að öðru óbreyttu.

„Til að hún nái markmiði þarf til dæmis harðari lendingu í hagkerfinu eða stöðnun leiguverðs um tíma.“

Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 26. febrúar næstkomandi.