Lyfja hefur fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins, sem var stofnað af Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni árið 2004.
Fram kemur í tilkynningu að samhliða kaupunum verði verslun Jurtaapóteksins á Laugavegi lokað.
„Kolbrún mun áfram koma að þróun vara Jurtaapóteksins, sem verða aðgengilegar í verslunum Lyfju frá og með 1. mars,“ segir þar.
Vitnað er til Karenar Óskar Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Lyfju, um að kaupin á vörumerki Jurtaapóteksins séu í samræmi við stefnu fyrirtækisins um að efla framboð á hreinum vörum og auka aðgengi að þeim í verslunum Lyfju um land allt.
Áætlað er að með kaupum á vörumerkinu aukist framboð Lyfju á náttúrulegum lausnum um rúman fimmtung.
Haf ter eftir henni að Lyfja hafi á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að bjóða upp á hreinar og náttúrulegar vörur og að vörumerki Jurtaapóteksins falli vel að þeirri stefnu.
„Þá er mikils virði að Kolbrún komi áfram að þróun á vöruframboði vörumerkisins, enda býr hún yfir áratuga reynslu og þekkingu á þessu sviði. Í samstarfinu verður lögð rík áhersla á að halda í þau gildi sem Jurtaapótekið hefur byggt á frá upphafi,“ segir Karen Ósk.
Þá er haft eftir Kolbrúnu að breytingarnar marki tímamót fyrir vörumerki Jurtaapóteksins og viðskiptavini þess og skapi ný tækifæri til áframhaldandi þróunar vöruúrvalsins og betra aðgengis að vörunum.
„Í þróun vara Jurtaapóteksins höfum við ávallt lagt áherslu á vandað hráefni, skýrt innihald og að forðast óþarfa fylli- og aukaefni, og þau vinnubrögð munu fylgja áfram með inn í næsta kafla vörumerkisins,“ segir hún.