Gdańsk í Póllandi er nýr áfangastaður Icelandair. Fram kemur í tilkynningu að borgin sé jafnframt fyrsti áfangastaður flugfélagsins í Póllandi.
„Með þessu heldur félagið áfram að efla leiðakerfi sitt og auka fjölbreytni áfangastaða, sérstaklega yfir vetrartímann,“ segir þar.
Haft er eftor Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair að með því að efla vetraráætlun félagsins sé áfram lögð áhersla á vöxt yfir vetrarmánuðina.
„Þannig nýtum við innviði okkar mun betur, á sama tíma og við bjóðum viðskiptavinum okkar fjölbreyttari tengingar allt árið um kring. Gdańsk er áhugaverð borg með mikla sögu og okkar fyrsti áfangastaður í Póllandi,“ segir hann.
Flogið verður til Gdańsk þrisvar til fjórum sinnum í viku frá 18. september í haust.
Fram kemur í tilkynningu Icelandair að flogið verði í dagflugi og því opnist með fluginu þægilegar tengingar frá Póllandi til Norður-Ameríku.