Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands segir að mótun peningastefnunnar næstu misseri muni sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands. Mynd/Google Earth

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 7,25%.

Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun, að því er fram kemur í tilkynningu bankans.

„Verðbólga mælist nú 5,2% og hefur aukist á ný. Þótt hækkun verðlags í janúar megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjaldtöku hins opinbera af nýjum bifreiðum eru verðhækkanir á tiltölulega breiðum grunni,“ segir þar.

Undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé því áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði.

„Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er spennan í þjóðarbúinu horfin, útlit fyrir tiltölulega hægan hagvöxt og að verðbólga hjaðni þegar líður á árið. Þrátt fyrir tímabundna aukningu verðbólgu í byrjun árs hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst.“

Óvissa er þó enn sögð mikil enda launahækkanir enn töluverðar og verðbólguvæntingar sem áfram mælast yfir markmiði.

Peningamál 2026/1

„Frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2½% markmið bankans.“

Frekari greiningu bankans á efnahagshorfum og -umhverfi má lesa í nýjasta riti Peningamála, sem einnig kom út í dag.