Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði um 9 prósent milli ára

Í heild drógust nýskráningar fyrirtækja í atvinnurekstri saman um eitt prósent á árinu 2025.

Línurit, farsími, tölva, efnahagsmál, gjaldþrot.
Mynd/Jakub Żerdzicki á Unsplash

Árið 2025 voru nýskráð 3.350 fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af 2.916 einkahlutafélög, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Flestar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eða 527, sem þó er fækkun um tvö prósent milli ára.

„Í heild drógust nýskráningar fyrirtækja í atvinnurekstri saman um 1% ef miðað er við árið 2024.“

Þá segir Hagstofan að á árinu 2025 hafi 965 fyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta sem sé þrettán prósenta aukning frá fyrra ári þegar 851 fyrirtæki varð gjaldþrota.

„Af 965 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta í fyrra voru 371 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2024.“

Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði því um níu prósent milli 2025 og 2024.

Fram kemur að hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta 2025 hafi að jafnaði starfað 2.392 árið 2024.

Samanborið við fyrra ár hafi þannig orðið 22 prósent aukning á heildarfjölda launafólks sem gjaldþrotin höfðu áhrif á.

„Þessi fjölgun var aðalega vegna fjölda launafólks í einkennandi greinum ferðaþjónustu, eða 1.014, sem er 59% aukning frá fyrra ári. Litlu færri störfuðu í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 847.“

Mynd/Hagstofa Íslands