Verðbólga mælist nú 5,2%

Lækkun bensínverðs um 27,4 prósent og dísilverðs um 24,2 prósent hafði áhrif til lækkunar verðbólgu, en á hinni hliðinni er 633,4 prósenta hækkun veggjalda vegna kílómetragjalda og verðhækkun bifreiða um 13,3 prósent.

kling, peningar, smápeningar, verðbólga, línurit
Mynd/Katharina Kammermann á Unsplash (breytt)

Síðastliðna tólf mánuði hefur verðbólga aukist um 5,2 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,5%.

Í nýbirtri verðbólgumælingu Hagstofu Íslands kemur fram að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,38 prósent frá fyrri mánuði.

Án húsnæðis hækkaði vísitalan líka um 0,38 prósent frá desember 2025.

Verðbólguaukningin er meiri en gert hafði verið ráð fyrir í spám greiningardeilda bankanna, en Íslandsbanki spáði 4,9 prósentum, Arion banki 5,0 prósentum og Landsbankinn 5,1 prósenti.

„Útsölur eru nú í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 7,4% (áhrif á vísitöluna -0,27%) og verð á húsbúnaði, heimilistækjum o.fl. lækkaði um 5,4% (-0,23%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 10,8% (-0,27%) og verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 1,0% (0,15%),“ segir á vef Hagstofunnar.

Þá vísar Hagstofan til þess að um áramót hafi verið gerðar ýmsar breytingar á gjöldum tengdum ökutækjum sem haft hafi áhrif á þróun verðbólgunnar.

„Olíugjald og vörugjöld á eldsneyti voru lögð niður og kolefnisgjaldið var hækkað. Tekin voru upp kílómetragjöld fyrir öll ökutæki, vörugjöldum á ökutæki var breytt og rafbílastyrkurinn var lækkaður.“

Lækkun bensínverðs um 27,4 prósent og dísilverðs um 24,2 prósnet hafi haft áhrif til lækkunar, en um leið hafi veggjöld aukist um 633,4 prósent vegna kílómetragjalda og verð á bifreiðum hafi hækkað um 13,3 prósent.

„Þar af mældist hækkun á rafbílum 6,4%, hækkun á tvinnbílum 16,3% og hækkun á bensín/díselbílum 19,8%.“

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,5%.