Rót verðbólgu liggi í þróun launa og húsnæðismarkaðar

Framkvæmdastjóri SI segir ljóst að verðbólgan og núverandi vaxtastig sé þungur baggi að bera fyrir heimili og fyrirtæki.

Sigurður Hannesson, Samtök iðnaðarins.
Mynd/samsett

Samtök iðnaðarins (SI) kalla eftir nýju plani og forystu til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Í tilkynningu samtakanna er áréttað að í þessum efnum verði ríki og sveitarfélög að spila með.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

„Samtök iðnaðarins krefjast þess að hið opinbera, ríki og sveitarfélög, aðilar vinnumarkaðarins og Seðlabankinn fari í markvissar og samstilltar aðgerðir til þess að ná niður verðbólgu með sem minnstum kostnaði fyrir atvinnulífið og samfélagið allt,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í tilkynningunni.

Aukin og mjög há verðbólga er sögð mikil vonbrigði.

„Verðbólgan hefur farið úr því að vera 3,7% í 5,2% síðan í október á síðasta ári. Nú fara saman mikil verðbólga, háir vextir, lítill hagvöxtur og vaxandi atvinnuleysi. Þetta er slæm þróun og við henni þarf að bregðast.“

Þá benda samtökin á að verðbólgan sé af innlendum toga.

„Líkt og Samtök iðnaðarins hafa ítrekað bent á er rót verðbólgu launaþróun og staða húsnæðismarkaðar.“

Launahækkanir eru sagðar hafa verið umfram framleiðnivöxt, ójafnvægi hafi verið á húsnæðismarkaði og ónógt aðhald hafi verið í opinberum rekstri. Við þetta hafi nú bæst hækkun hins opinbera á gjöldum.

Sigurður áréttar mikilvægi þess að allir aðilar undir forystu ríkisins taki ábyrgð á því verkefni að koma niður verðbólgu og vöxtum.

Hann segir núverandi verðbólgu- og vaxtastig mjög dýrkeypt fyrir samfélagið.

„Ljóst er að verðbólgan og núverandi vaxtastig er þungur baggi að bera fyrir heimili og fyrirtæki. Afleiðingarnar sjást í hagtölum sem sýna hægan hagvöxt og vaxandi atvinnuleysi og gætir áhrifanna í iðnaði þar sem má greina samdrátt,“ segir Sigurður.