Bakslag í útflutningi og háir raunvextir hamla hagvexti

Greining Íslandsbanka segir í nýrri þjóðhagsspá að líklegt sé að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli á vordögum 2026 og að fram á mitt ár 2027 verði stigin varfærin vaxtalækkunarskref.

Mynd/Samsett

Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er gert ráð fyrir afar hægum hagvexti á þessu ári. Fram kemur að bakslag í ýmsum útflutningsgreinum ásamt áhrifum hárra raunvaxta á innlenda eftirspurn séu helstu skýringar þessa.

„Spáð er 0,6% hagvexti í ár og ekki þarf mikið út af að bregða svo vöxturinn snúist í samdrátt,“ segir í umfjöllun bankans.

Spáin geri þó ráð fyrir að hagvöxtur glæðist á ný á næstu tveimur árum, studdur af bata í útflutningsgreinum og minnkandi vaxtaaðhaldi.

„Fjárfesting tekur þá aftur við sér og vöxtur einkaneyslu verður þróttmeiri en í ár.“

Verðbólga er sögð verða þrálát áfram og yfir markmiði Seðlabankans.

„Lokaspretturinn að verðbólgumarkmiðinu mun reynast erfiður og ekki útlit fyrir að því verði náð á spátímanum að öðru óbreyttu.“

Spáin gerir ráð fyrir að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum þar til verðbólga fari að hjaðna á ný.

„Líklegt er að vaxtalækkunarferlið hefjist á vordögum 2026 og varfærin vaxtalækkunarskref verði stigin fram á mitt ár 2027.“

Þá eru sagðar horfur á hægfara veikingu krónunnar á spátímanum, enda sé hátt raungengi áskorun fyrir útflutningsgeirann og búi til lækkunarþrýsting á gengið.

Alla spá greiningar Íslandsbanka má sækja á vef bankans.