Sena og Arion banki hafa bæst í eigendahóp framleiðslufyrirtækisins Glassriver, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Fyrirtækið er sagt hafa um árabil verið eitt það allra öflugasta á sviði framleiðslu sjónvarpsþátta á Íslandi.
„Glassriver hefur komið að mörgum stærstu og þekktustu sjónvarpsverkefnum síðustu ára og má þar t.d. nefna Svörtu sanda, HeimaEy og Venjulegt fólk.“
Bent er á að Sena sé leiðandi fyrirtæki á sviði viðburða og tónleika og hafi áratugareynslu af stuðningi við listræn verkefni.
„Mikil samlegðaráhrif hljótast með þessu eignarhaldi og getur Sena með þekkingu sinni á verkefnastjórn, ferlum og fjárstýringu gefið starfsfólki Glassriver enn frekara rými til þróunar verkefna og listræns starfs.“
Aðkoma Arion banka, sem sagður er hafa verið viðskiptabanki Glassriver um árabil, sé hins vegar liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.
„Verkefni næstu mánaða er endurskipulagning og áframhaldandi uppbygging á rekstri Glassriver með nýjum eigendum og spennandi verkefnum sem mörg eru þegar í farvatninu.“