Sendafélagið ehf. hefur tryggt sér langtímafjármögnun hjá Landsbankanum hf.
Fram kemur í tilkynningu Sýnar til Kauphallar að Sendafélagið hafi í kjölfarið endurgreitt að stórum hluta hluthafalán sem Sýn og Nova veittu félaginu í tengslum við kaup á dreifikerfi Sýnar.
Greint var frá afhendingu 4G og 5G dreifikerfis Sýnar til Sendafélagsins 31. desember síðastliðinn.
Endurgreiðsla hluthafalánsins er sögð í samræmi við upphaflegar forsendur viðskiptanna og feli í sér innflæði handbærs fjár til Sýnar að fjárhæð 938 milljóna króna.
„Greiðslan leiðir til lækkunar skulda félagsins og styrkir jafnframt sjóðstreymi og lausafjárstöðu þess,“ segir í tilkynningunni.
Vegna þessa hefur afkomuspá Sýnar verið uppfærð á ný, en fyrri spá frá því um miðjan október 2025 gerði ráð fyrir að EBITDAaL (hagnaður fyrir vexti, afskriftir og fjármagnskostnað, auk leigukostnaðar) næmi um 3.450 milljónum króna, fjárfestingar ársins um 3.150 milljónum króna og að EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum yrði um 300 milljónir króna.
„Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri félagsins fyrir rekstrarárið 2025 sem liggur nú fyrir nam EBITDAaL 3.490 m.kr. (1.371 m.kr. á 4. ársfjórðungi), fjárfestingar námu 3.183 m.kr. (1.081 m.kr. á 4. ársfjórðungi) og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum því um 307 m.kr. (290 m.kr. á 4. ársfjórðungi).“
Sleginn er sá varnagli að um óendurskoðaðar bráðabirgðatölur sé að ræða, en endanlegt uppgjör verður birt 26. febrúar næstkomandi.