Skyndibitamarkaður í fyrsta sinn mældur í Ánægjuvoginni

Til þess að mælast í Íslensku ánægjuvoginni þurfa fyrirtæki að ná ákveðinni stærð og markaðshlutdeild.

Vinningshafar eftir afhendingu viðurkenningar Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2025.
Vinningshafar eftir afhendingu viðurkenningar Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2025. Mynd/Stjórnvísi

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2025 voru kynntar síðdegi í gær, 22. janúar. Er þetta tuttugasta og sjöunda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Í tilkynningu Stjórnvísi kemur fram að Íslenska ánægjuvogin verðlauni þau fyrirtæki sem skari fram úr í ánægju viðskiptavina á sínum markaði.

Nýsköpun og stafræn upplifun

„Niðurstöður sýna að þau fyrirtæki sem mælast með hæstu ánægju viðskiptavina eiga það sameiginlegt að vera nýskapandi, leggja áherslu á þjónustu og sterka stafræna upplifun, oft á mörkuðum sem hafa tekið miklum breytingum á undanförnum árum,“ segir í tilkynningu um niðurstöðurnar.

Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi, við afhendingu viðurkenninga Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2025. Mynd/Skjáskot af Youtube

Haft er eftir Gunnhildi Arnardóttur, framkvæmdastjóra Íslensku ánægjuvogarinnar og Stjórnvísi, að tilgangur mælingarinnar sé að hvetja íslensk fyrirtæki til að hlúa að ánægju viðskiptavina og veita þeim samræmdan og hlutlausan mælikvarða á frammistöðu sína á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila.

„Það er mikill heiður fyrir fyrirtæki að vera hæst á sínum markaði í Íslensku ánægjuvoginni og mörg setja sér markmið því tengt,“ segir hún.

Fram kemur að í þetta sinn hafi skyndibitamarkaður verið mældur í fyrsta sinn, en til að mælast í Íslensku ánægjuvoginni þurfi fyrirtæki að ná ákveðinni stærð og markaðshlutdeild.

Efstu þrjú fyrirtækin

Sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2025 með 84,7 stig var indó, hæsta allra fyrirtækja. Í öðru sæti var Dropp með 83,9 stig, aðeins tæpu einu stigi á eftir. Í þriðja sæti var svo Costco eldsneyti með 81,3 stig.

„Það mælist töluverð breidd á ánægju þeirra fyrirtækja sem voru mæld og eru einkunnir frá 60,8 til 84,7 af 100 mögulegum.“

Sigurvegarar ánægjuvogarinnar 2025 – Gullhafar:

  • Indó með 84,7 stig meðal banka
  • Dropp með 83,9 stig meðal póstþjónustufyrirtækja
  • Costco eldsneyti með 81,3 stig meðal eldsneytis- og hraðhleðslustöðva
  • ELKO með 77,1 stig meðal raftækjaverslana
  • IKEA með 76,9 stig meðal húsgagnaverslana
  • Sjóvá með 72,9 stig meðal tryggingafélaga
  • Nova með 72,7 stig meðal fjarskiptafyrirtækja
  • Krónan með 72,7 stig meðal matvöruverslana

Haft er eftir Gunnhildi að ljós sé að ánægja viðskiptavina sé ekki föst stærð og ekkert sem heiti að hafa áskrift að Ánægjuvoginni.

„Fyrirtækin þurfa stöðugt að vinna að ánægju viðskiptavina. Á nokkrum mörkuðum má sjá umtalsverðar breytingar á niðurstöðum fyrirtækja milli ára, þar sem sum hafa bætt stöðu sína verulega, á meðan önnur hafa lækkað frá fyrri mælingu,” segir hún.

Vinningshafar í sinni atvinnugrein 2025 – Blátt merki (ekki marktækur munur á efsta og næstefsta sæti):

  • Lyfjaver með 79,0 stig meðal apóteka
  • Tokyo sushi með 75,7 stig meðal skyndibitastaða
  • A4 með 73,8 stig meðal ritfanga- og bókaverslana
  • BYKO með 69,6 stig meðal byggingavöruverslana
  • Orka náttúrunnar með 69,4 stig meðal raforkusala
  • Kringlan með 67,4 stig meðal verslunarmiðstöðva

Konur á miðjum aldri á landsbyggðinni ánægðasti hópurinn

Þá kemur fram í tilkynningu Stjórnvísi um könnunina að gögnin sýni fram á ólíka upplifun út frá kyni, aldri og búsetu.

„Konur á aldrinum 55-64 ára á landsbyggðinni er ánægðasti hópur neytenda á Íslandi en karlmenn 35-44 ára á landsbyggðinni sá óánægðasti.“

Uppskeruhátíð Íslensku ánægjuvogarinnar 2025 fór fram á á Grand hóteli síðdegis í gær, fimmtudaginn 22. janúar 2026.

Upptöku af viðburðinum er að finna á vef Youtube.

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi, en um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni sá Prósent tíunda árið í röð.

Fram kemur að gögnum hafi verið safnað frá apríl til desember árið 2025.

„Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents á um 2.000 manna úrtak á hverjum markaði. 175 til 1.000 svör bárust fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins.“