Verðbólga eykst talsvert í janúar samkvæmt nýrri spá Greiningar Íslandsbanka og fer úr 4,5 prósentum í 4,9 prósent. Það yrði mesta verðbólga frá því í október 2024.
Helsta ástæða aukinnar verðbólgu er sögð ný lög um rekstur og kostnað ökutækja sem tóku gildi um áramót.
Óvissa um mælinguna er hins vegar sögð talsverð.
„Áhrif kílómetragjalds og afnáms vörugjalda á eldsneyti – og hvernig þau munu birtast í mælingu Hagstofunnar – eru sérstaklega óljós,“ segir í spánni.
Þá ríki einnig óvissa um hversu mikið bílar komi til með að hækka í verði í kjölfar breytinga á vörugjöldum.
„Janúarútsölur og lækkun flugfargjalda eru á sínum stað í mánuðinum sem hafa áhrif til lækkunar á vísitölunni á meðan ýmsar gjaldskrárhækkanir og krónutöluhækkanir leiða til hækkunar.“

Bent er á að verðbólgan í janúar verði nýjasta mæling sem peningastefnunefnd Seðlabankans hefur við að styðjast þegar hún kemur saman í byrjun febrúar.
Horft fram á veginn
Greining Íslandsbanka segir skammt stórra högga á milli í verðbólgutaktinum.
Í nóvember hafi ársverðbólga mælst í sínum lægstu gildum í fimm ár, en í desember hafi hún hækkað talsvert umfram spár og mælst 4,5 prósent.
Nú sé útlit fyrir að verðbólgan komi til með að aukast enn frekar í janúar.
„Ef spáin okkar rætist og verðbólga mælist 4,9% er það mesta verðbólga síðan í október 2024.“
Um leið segir að ef litið sé á björtu hliðarnar, og spáin Greiningar reynist nærri lagi, þá sé aukningin að mestu leyti vegna nýrra laga um ökutæki en ekki vegna undirliggjandi verðbólguþrýstings.
„Samt sem áður er það talsvert áhyggjuefni að verðbólga sé að nálgast 5% og þar með forsenduákvæðið í Stöðugleikasamningum.“
Verði verðbólga í sumarlok meiri en forsenduákvæðið skilgreinir geti samningsaðilar krafist endurskoðunar á samningunum.
„Útlitið fram á veginn er þó að verðbólga hjaðni.“
Bráðabirgðaspá Greiningar Íslandsbanka er svohljóðandi:
- Febrúar: 0,7% hækkun VNV (4,7% ársverðbólga) – Útsölulok í helstu liðum.
- Mars: 0,6% hækkun VNV (4,9% ársverðbólga) – Útsölur ganga að fullu til baka, flugverð hækkar í aðdraganda páska.
- Apríl: 0,3% hækkun VNV (4,2% ársverðbólga) – Lítilsháttar hækkun í flestum liðum, minni hækkun á flugfargjöldum vegna tímasetningar páska.
Alla spá Greiningar Íslandsbanka má lesa á vef bankans.