Krónan hefur lækkað verð á öllum vörum frá vörumerkinu Grøn Balance um tíu prósent. Undir vörumerkinu eru matvörur, barnavörur, hreinlætis-, húð-, og heimilsvörur.
Fram kemur að tilkynningu Krónunnar að verðlækkunin nái yfir um 200 lífrænar og vottaðar vörur.
„Verðlækkunin byggir á markvissri hagræðingu í innkaupum og er jafnframt hluti af langtímastefnu Krónunnar um að bjóða eigin vörumerki á sem hagkvæmasta verði,“ segir í tilkynningunni.
Verðlagning sé reglulega endurmetin með hliðsjón af kostnaði og markaðsaðstæðum.

Haft er eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að mikilvægt sé að bregðast við þeirri stöðu sem mörg íslensk heimili standi frammi fyrir í núverandi efnahagsumhverfi.
Það eigi sérstaklega við þegar komi að daglegum innkaupum, þar sem útgjöld heimila hafi aukist.
Hún segir verðlækkunina endurspegla vinnu sem miði að því að halda kostnaði niðri, nýta svigrúm til að lækka verð á vörum sem Krónan flytur sjálf inn og skila þar með hagstæðara innkaupsverði til viðskiptavina.
„Við viljum einnig auðvelda fólki innkaup sem sameina hagkvæmni, gæði og ábyrgð gagnvart umhverfi og heilsu en það er einmitt það sem Grøn Balance stendur fyrir,“ segir hún.
Framtakið endurspegli jafnframt markmið um að lyfta upp lífrænum og heilnæmum vörum og gera þær sýnilegri og aðgengilegri breiðari hópi.
„Vörurnar eru allar vottaðar og uppfylla strangar kröfur um umhverfis- og neytendavernd, þar á meðal lífræna vottun á matvörum. Það er því virkilega ánægjulegt að geta boðið þessar vörur á lægra verði en áður,“ segir Guðrún.
Þá segir í tilkynningu Krónunnar að hlutfall lífrænna og sjálfbærra innkaupa sé enn lágt hér á landi í samanburði við önnur Norðurlönd.
„Samkvæmt samtökunum Lífrænt Ísland er um eitt prósent landbúnaðar á Íslandi með lífræna vottun, á meðan markaðshlutdeild lífrænna vara í Danmörku er rétt undir 12 prósentum samkvæmt skýrslu The World of Organic Agriculture frá 2024.“
Þetta bendi til þess að á Íslandi séu tækifæri til aukinnar vitundar og þróunar á sviði lífrænna valkosta.
„Það sem við veljum ofan í matarkörfuna okkar hefur áhrif og jafnvel litlar breytingar í daglegum innkaupum geta haft mælanleg áhrif til lengri tíma, bæði hvað varðar umhverfi og heilsu. Við viljum leggja okkar af mörkum til að slík innkaup séu aðgengileg, einföld og fyrst og fremst hagkvæm fyrir íslensk heimili,“ segir Guðrún.