Vöruskiptatölur fyrir lokafjórðung síðasta árs sýna sterk merki um kólnandi hagkerfi, jafnt á útflutnings- sem innflutningshlið, að mati Greiningar Íslandsbanka. Útlit er sagt fyrir samdrátt í útflutningi og hægan hagvöxt á þessu ári.
Í nýrri greiningu er spáð hægum hagvexti annað árið í röð og horfur á að bæði innflutningur og útflutningur haldi áfram að skreppa saman á komandi mánuðum í samanburði við síðasta ár.
Vísað er til þess að seint á síðasta ári hafi Greining Íslandsbanka gert einfalda sviðsmynd af því sem kynni að vera í kortunum á þessu ári í kjölfar margháttaðra vísbendinga um mótbyr í útflutningi.
„Okkur sýnist sú sviðsmynd enn nokkuð líkleg.“
Samandregið segir í nýrri greiningu að:
- Greinileg merki séu um samdrátt á breiðum grunni í útfluttum iðnaðarvörum.
- Það, ásamt hægari uppbyggingu í gagnaveraiðnaði og varfærnari fjárfestingaráformum hjá fyrirtækjum almennt, endurspeglist í samdrætti í innflutningi hrá-, rekstrar- og fjárfestingarvara.
- Þá sé fólksfjölgun hægari og atvinnuleysi aukið, auk þess sem væntingar almennings um dekkri efnahagshorfur hægi trúlega á vexti spurnar eftir innfluttum neysluvörum.
- Kapphlaup við tímann í aðdraganda umfangsmikilla breytinga á lagaramma skýri svo hömstrun á fólksbílum og muni væntanlega að sama skapi þýða minni kaup en ella á einkabílum framan af þessu ári.
Alla greininguna, þar sem meðal annars er kafað í bráðabirgðatölur Hagstofunnar um inn er að finna á vef bankans.