Fluttar voru út vörur fyrir 74,2 milljarða króna í nýliðnum desembermánuði og inn fyrir 115 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.
„Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 40,8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 45,9 milljarða króna í desember 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.“
Vöruskiptajöfnuðurinn í desember 2025 hafi því verið 5,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári.
„Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 483,6 milljarða króna sem er 59,1 milljarði króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.“
Þá kemur fram í bráðabirgðatölum Hagstofunnar að verðmæti vöruútflutnings í desember hafi verið 10,3 milljörðum króna minni (12 prósent) en í desember 2024, farið úr 84,6 milljörðum króna í 74,2 milljarða.
„Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 922,2 milljarðar króna og dróst saman um 9,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 1% á gengi hvors árs.“
Iðnaðarvörur eru sagðar hafa verið 52 prósent alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dregist saman um tvö prósent samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Sjávarafurðir hafi svo verið 39 prósent alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra aukist um þrjú prósent í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Nálgast má alla umfjöllun Hagstofunnar á vef hennar.