Atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára var 6,5 prósent í nóvembermánuði, samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar.
„Fjöldi atvinnulausra var um 15.200. Hlutfall starfandi var 74,7%, sem samsvarar tæplega 217.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,9% eða um 233.100 manns á vinnumarkaði.“
Fram kemur að samanborið við sama mánuð í fyrra hafi atvinnuleysi aukist um 4,3 prósentustig, hlutfall starfandi lækkað um 1,9 prósentustig og atvinnuþátttaka aukist um 1,6 prósentustig.
„Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir nóvember 2025 mældist atvinnuleysi 7,0%. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 75,5% og atvinnuþátttaka 81,1%.“
Þá segir að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hafi aukist um 2,4 prósentustig á milli október og nóvember, hlutfall starfandi hafi lækkað um tvö prósentustig og atvinnuþátttaka minnkað um 0,1 prósentustig.