Gistinóttum á hótelum fækkaði um 6,6 prósent í nóvember 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi.
„Alls voru gistinæturnar rúmlega 365.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 391.000 á sama tíma árið 2024,“ segir í færslu stofnunarinnar.
Fram kemur að gistinóttum hafi fækkað í öllum landshlutum og hlutfallslega mest á Austurlandi eða um 31,1 prósent.
Þá hafi einnig orðið umtalsverð fækkun á höfuðborgarsvæðinu, um 8,9 prósent, á Vesturlandi og Vestfjörðum, um 7,9 prósent og á Norðurlandi um 7,1 prósent.
Samdrátturinn var minni á Suðurlandi og á Suðurnesjum þar sem gistinóttum fækkaði um 1,1 prósent og 0,9 prósent.
„Alls fækkaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um rúmlega 20 þúsund en samanlagt um rúmlega 5.500 í öðrum landshlutum.“
Þá kemur fram að í mánuðinu hafi orðið 2,9 prósenta fækkun á gistinóttum erlendra ferðamanna í hótelum landsins.
Nánari greiningu og útlistun á framboði gistingar er að finna á vef Hagstofunnar.