Kaupmáttur jókst á þriðja ársfjórðungi

Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 7,3 prósent.

Greiðslumáti, kortagreiðsla, kaffihús.
Greitt fyrir vörur. Mynd/SumUp á Unsplash.

Kaupmáttur heimilanna jókst um 7,1 prósent á þriðja ársfjórðungi 2025 í samanburði við sama tímabil 2024 samkvæmt nýbirtri áætlun Hagstofu Íslands.

„Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 1,6 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 5,9 prósent frá sama tímabili í fyrra.“

Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 1,9 prósent á tímabilinu en þá er búið að taka tillit til fjögurra prósenta verðbólgu á sama tímabili.

Þá kemur fram að heildartekjur heimilanna hafi aukist um 6,7 prósent á þriðja ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra.

„Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 7,3 prósent frá sama ársfjórðungi á síðasta ári.“

Eins kemur fram að lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur hafi aukist um 6,4 prósent á fjórðungnum samanborið við þriðja fjórðung 2024 og numið um 15,5 prósentum af heildartekjum heimilanna.

Á sama tíma hafi heildargjöld heimilanna aukist um 6,1 prósent.

Hagstofan slær þann varnagla að um sé að ræða bráðabirgðaniðurstöður en endurskoðaðar tölur verði birtar þegar þær bæst hafi við upplýsingar, svo sem úr skattframtölum fyrirtækja.