Verðmæti afla jókst um 14% á milli fiskveiðiára

Á tólf mánaða tímabilinu desember 2024 til nóvember 2025 var samtals landað 1.040 þúsund tonnum sem er sex prósentum meiri afli en á sama tímabili ári fyrr.

Aflaverðmæti á síðasta fiskveiðiári, sem telur frá september 2024 til ágúst 2025, var 194 milljarðar króna, fjórtán prósentum meira en á fyrra fiskveiðiári 2023 til 2024.

Í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands kemur fram að verðmæti botnfiskafla hafi numið tæpum 147 milljörðum sem sé átján prósenta aukning miðað við fyrra fiskveiðiár.

Verðmæti uppsjávarafla hafi numið rúmum 35 milljörðum króna sem sé aukning um fjögur prósent milli fiskveiðiára.

Í morgun birti Hagstofan jafnframt tölur um landaðan afla í nýliðnum nóvembermánuði, sem var tæp 103 þúsund tonn. Það er sagt níu prósentum meiri afli en í nóvember á síðasta ári.

„Botnfiskafli jókst um 10% á milli ára, uppsjávarafli um 9% en flatfiskafli dróst saman um 9%.“

Þá kemur fram að á tólf mánaða tímabilinu desember 2024 til nóvember 2025 hafi samtals verið landað 1.040 þúsund tonnum sem sé sex prósentum meiri afli en á sama tímabili ári fyrr.