Afkomuhorfur ríkisins fyrir árið í heild betri en ætlað var

Endurmat í tengslum við fjáraukalög bendir til að halli A1-hluta ríkissjóðs verði á árinu um 35 milljarðar króna, sem er mun betri niðurstaða en áætlað var í fjárlögum.

Fjármálaráðuneytið við Lindargötu í Reykjavík.
Fjármálaráðuneytið við Lindargötu í Reykjavík. Mynd/Google Earth

Tekjur ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins reyndust meiri en áætlað var samkvæmt nýbirtu uppgjöri Fjársýslu ríkisins. Tímabundnir liðir, einkum auknar lífeyrisskuldbindingar og uppgjör ÍL-sjóðs, hafa þó áhrif til hækkunar gjalda á tímabilinu.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins er haft eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, að niðurstöður uppgjörsins séu ábending um mikilvægi aga og ábyrgðar í ríkisfjármálum.

„Þrátt fyrir tímabundna liði sem hafa áhrif á rekstraryfirlitið eru heildarhorfur ársins stöðugri en áður var talið, og við munum halda áfram að vinna að því að tryggja sjálfbæran rekstur ríkisins,“ segir hann.

Meiri halli en í fyrra

Afkoman samkvæmt rekstraryfirliti er sögð neikvæð um 142,7 milljarða króna, sem sé meiri halli en á sama tíma í fyrra.

Tekið er fram að hallinn skýrist að stórum hluta af hækkun á lífeyrisskuldbindingum ríkisins, sem sé bókhaldsliður og hafi ekki áhrif á rekstur ríkissjóðs til lengri tíma.

Þrátt fyrir þetta eru afkomuhorfur á árinu í heild sagðar betri en áður var talið.

„Endurmat í tengslum við fjáraukalög bendir til að halli A1-hluta ríkissjóðs, sem er sú starfsemi sem er einkanlega fjármögnuð með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum og framlögum, verði um 35 ma.kr. á árinu, sem er mun betri niðurstaða en áætlað var í fjárlögum,“ segir í umfjöllun ráðuneytisins.

Tekjur meiri en gert var ráð fyrir

Tekjur ríkissjóðs nema 994 milljörðum króna og eru 72 milljarða umfram áætlun. Skattar og tryggingagjöld hækka um ellefu prósent frá fyrra ári. Aðrar tekjur, þar á meðal af auðlindum, eru einnig sagðar skila meiri tekjum en búist hafi verið við.

Þá segir að uppgjör ÍL-sjóðs hafi tímabundin áhrif á bókhald ríkissjóðs og lækki skuldir A-hluta um sex prósent. Sömuleiðis hafi sala Íslandsbanka skilað ríkissjóði 90,6 milljörðum króna.

Fjárfestingar ríkisins eru sagðar svipaðar og á síðasta ári, en þær nema 46,1 milljarði króna.

„Þar vega þungt framkvæmdir við vegakerfið og uppbygging nýs Landspítala.“

Bent er á að gjöld málaflokka nemi 1.082,1 milljarði króna og aukist einkum vegna hærri fjármagnskostnaðar í tengslum við uppgjör ÍL-sjóðs og hækkunar á lífeyrisskuldbindingum.

Helstu atriði uppgjörsins:

  • Tekjur ríkissjóðs eru 72 ma.kr. hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
  • Rekstraryfirlit sýnir 142,7 ma.kr. halla, að mestu vegna tímabundinnar hækkunar lífeyrisskuldbindinga.
  •  Endurmat bendir til að halli ársins verði minni en áður var talið samkvæmt GFS.
  •  Uppgjör ÍL-sjóðs lækkar skuldir ríkisins um 6%.
  • Sala Íslandsbanka skilar 90,6 ma.kr. innstreymi í ríkissjóð, en hefur ekki áhrif á tekjur eða gjöld.
  •  Fjárfestingar svipaðar og í fyrra, einkum í vegakerfi og nýju sjúkrahúsi.

Ársfjórðungsuppgjörið er að finna í heild sinni á vef Fjársýslu ríkisins