Íslendingar langduglegastir að nota snjallsímagreiðslur

Ísland og Noregur skera sig úr sem þau lönd þar sem X-pay greiðslulausnir eru mest og minnst notaðar.

Snertilaus símagreiðsla.
Snertilaus símagreiðsla. Mynd/Jonas Leupe á Unsplash

Meðal Norðurlandaþjóða eru Íslendingar langduglegastir að nota snjallsíma til að greiða fyrir vörur og þjónustu. Norðmenn er aftur á móti síst líklegir til að nýta sér slíkar greiðslulausnir. Nærri helmingur greiðslna í íslenskum verslunum eru svokallaðar X-pay farsímagreiðslur, svo sem Google Pay eða Apple Pay.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri sameiginlegri skýrslu seðlabanka Norðurlandanna fimm, Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, um greiðslumiðlun á Norðurlöndunum. 

Þar segir að svonefndar „X-pay lausnir“ hafi verið kynntar síðar en innlendar farsímagreiðslulausnir á Norðurlöndum.

„Sameiginlegt einkenni allra X-pay lausna er að þær nýta innbyggðan aðgang að vélbúnaði tækja og stýrikerfum, sem gerir kleift að framkvæma snertilausar greiðslur á öruggan og hnökralausan hátt. Annað skilgreinandi einkenni er að þær byggja á kortum sem undirliggjandi greiðslutæki. Að bjóða upp á X-pay lausn er ákvörðun greiðanda­bankans, kortaútgefandans.“

Fram kemur að í heild hafi X-pay lausnir fljótt náð verulegum hlut meðal greiðsluleiða í verslunum. Leiðin hafi líka notið slíkra vinsælda að erfitt hafi verið fyrir banka að bjóða ekki upp á möguleikann.

Þá hafi upptaka greiðsluleiðarinnar verið einföld fyrir smásala því í raun sé bara um að ræða kortaviðskipti og engin þörf fyrir nýja samninga eða nýjan búnað.

Þá segir að Ísland og Noregur skeri sig úr sem þau lönd þar sem X-pay er mest og minnst notað, í þessari röð.

Súlurit sem ber saman notkun farsímagreiðslulausna Íslendinga, Norðmanna, Finna, Dana og Svía.

„Á Íslandi má þetta að hluta rekja til skorts á innlendri farsímagreiðslulausn. Frá innleiðingu hefur X-pay í raun verið eina farsímagreiðslulausnin í boði. Í dag bjóða allir viðskiptabankar og sparisjóðir á Íslandi upp á X-pay lausnir,“ segir í skýrslunni.

Í Noregi er innleiðing þessarar greiðslulausnar hins vegar sögð hafa verið hægari.

„Í lengri tíma héldu nokkrir norskir bankar aftur af stuðningi við Apple Pay í kjölfar þess að Apple neitaði að veita öðrum lausnum aðgang að snertilausri tækni iPhone. Eftir að Apple skuldbatt sig til að breyta þessu hafa bankarnir – sem eru sam­eigendur Vipps MobilePay – nú allir hafið að bjóða viðskiptavinum sínum Apple Pay.“

Þá hafi norskir smásalar einnig verið til að samþykkja snertilausar greiðslur, sem líka hafi hamlað innleiðingu. Þetta hafi stafað af tiltölulega seinni innleiðingu á snertilausri tækni fyrir BankAxept, norska debetkortið og ódýrustu greiðslulausn landsins.

„Það var ekki fyrr en árið 2020, á hápunkti heimsfaraldursins, að norskir smásalar tóku snertilausar greiðslur í stórum stíl í notkun.“

Á vef Seðlabanka Íslands segir að nýja skýrslan veiti yfirsýn yfir innviði og greiðsluhegðun á Norðurlöndunum og velti upp því sem er líkt og ólíkt á milli landa. Einnig sé fjallað um framtíðarþróun greiðslumiðlunar á svæðinu.

Seðlabankinn bendir á að stafræn þróun á Norðurlöndunum sé með því mesta sem þekkist í heiminum og endurspeglist einkum í því hvernig greiðslumiðlun sé háttað en greiðslur fari að mestu fram á stafrænan hátt.

„Þrátt fyrir það eru innviðir fyrir greiðslur á Norðurlöndunum mismunandi. Þessi munur stafar líklega að mestu af ólíkum greiðsluvenjum og lausnum sem bankar bjóða upp á í hverju landi fyrir sig,“ segir á vef bankans.