Greining Íslandsbanka spáir 3,9 prósent verð­bólgu um jól­in

Ársverðbólga eykst í desember samkvæmt spá Greiningar Íslandsbanka, einkum vegna hækkunar á flugverði og þess að áhrif afsláttardaga ganga til baka. Talið er líklegt að verðbólgan komi til með að hjaðna nokkuð þegar líður á vorið.

Mynd/samsett

Vísitala neysluverðs hækkar um 0,6 prósent milli mánaða í desember gangi eftir ný spá Greiningar Íslandsbanka. Ársverðbólga fer þá úr 3,7 prósentum í 3,9 prósent.

„Áhrif afsláttardaga og lækkunar á flugverði voru sterk í nóvember og gerði það að verkum að vísitalan lækkaði milli mánaða þvert á spár. Þessi áhrif ganga nú til baka og er ástæða þess að vísitalan hækkar meira en jafnan í desember samkvæmt okkar spá,“ segir í umfjöllun bankans.

Hagstofan birtir næstu verðbólgumælingu sína þann 22. desember.

Ferðir og flutningar vega þyngst

Í spánni er gert ráð fyrir hækkun allra helstu liða.

„Liðurinn Ferðir og flutningar vegur þyngst í hækkuninni í desember. Þar ber hæst árstíðarbundin hækkun á flugverði, sem samkvæmt mælingu okkar hækkar um 11,7% á milli mánaða og hefur +0,27% áhrif á vísitöluna.“

Bent er á að í síðasta mánuði hafi flugverð lækkað um rúmlega 14 prósent á milli mánaða, sem hafi verið meiri lækkun en gert var ráð fyrir.

Það gæti hafa verið vegna minni eftirspurnar ferðamanna á komum hingað til lands og sagt að áhugavert verði að fylgjast með þróuninni næstu mánuði, þar sem minni eftirspurn gæti leitt til lægra flugverðs.

Verðlækkun eldsneytis kemur á móti hærra flugverði

„Það sem vegur upp á móti hækkunum á flugverði er verðlækkun á eldsneyti. Við gerum ráð fyrir að eldsneyti lækki um 1,9%, sem hefur -0,07% áhrif á vísitöluna. Verð á Brent-olíu hefur verið í lækkunarfasa síðustu misseri og virðist verðlækkun á heimsmarkaði vera að skila sér í dælurnar hér á landi.“

Þá segir að húsnæðisliðurinn vegi einnig þungt í mánuðinum enda sé vægi hans tæp 30 prósent.

„Þar hefur reiknaða húsaleigan mestu áhrifin en við spáum því að hún hækki um 0,4% milli mánaða, sem hefur +0,08% áhrif á vísitöluna.“

Þetta sé svipuð hækkun og í síðasta mánuði, en talsvert minni hækkun en mánuðina þar á undan.

„Liðurinn hefur reynst frekar óútreiknanlegur, en við gerum ráð fyrir svipuðum hækkunum í reiknuðu húsaleigunni næstu mánuði.“

Þá er í spánni gert ráð fyrir að áhrif afsláttardaga í nóvember gangi til baka.

Verðbólgan hjaðnar með vorinu

Greining Íslandsbanka bendir á að verðbólga hafi ekki mælst hér minni í fimm ár, en hún sé nú 3,7 prósent. Verðbólguhorfur hafi skánað líttillega með mælingunni í síðasta mánuði.

„Samkvæmt spá okkar mun verðbólga mælast 3,9% og vera rétt undir 4% efri vikmörkum verðbólgumarkmiðsins. Verðbólga hefur verið við efri vikmörk Seðlabankans allt þetta ár. Við gerum ráð fyrir að hún verði á svipuðum slóðum næstu mánuði samkvæmt bráðabirgðaspá okkar.“

Gangi spáin eftir verður verðbólga á svipuðum slóðum næstu mánuði og mælist 3,8 prósent í mars.

„Við gerum ráð fyrir að hún taki að hjaðna hraðar með vorinu og verði nálægt 3% að jafnaði á seinni hluta ársins.“

Reiknuð húsaleiga stærsti óvissuþátturinn

Í bráðabirgðaspá Greiningar eru óvissuþættir og reiknuð húsaleiga sagður þeirra stærstur, en erfitt hafi reynst að spá fyrir um hana að undanförnu.

„Einnig er talsverð óvissa um janúar, þar sem breytingar á vörugjöldum og innleiðing kílómetragjalds geta haft áhrif á vísitöluna verði frumvarp þar að lútandi samþykkt fyrir áramót.“

Langtímaspá bankans hljóðar upp á 3,4 prósent verðbólgu að meðaltali árið 2026 og 3,3 prósent árið 2027.

„Verðbólga mun því hjaðna frá núverandi gildum á næstu misserum en miðað við forsendur okkar um t.d. laun og þróun leiguverðs mun hún ekki ná verðbólgumarkmiðinu á spátímanum.“