Átta ríki teljast ekki lengur áhættusöm og ósamvinnuþýð

Löndin á lista Fjármálaeftirlits Seðlabankans yfir áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki koma annars vegar af lista Alþjóðlega fjármálaaðgerðahópsins FATF og hins vegar af lista Evrópusambandsins um áhættusöm þriðju lönd.

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. Mynd/Seðlabankinn

Átta lönd hafa fallið af lista ESB um áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki og gera það því líka á lista Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Seðlabankinn hefur á vef sínum birt uppfærðan lista yfir lönd sem falla undir skilgreininguna í samræmi við lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

„Á listanum er annars vegar um að ræða ríki sem Alþjóðlegi fjármálaaðgerðahópurinn (e. Financial Action Task Force, FATF) hefur tilgreint sem áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð og hins vegar ríki sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd,“ segir á vef Seðlabankans.

FATF er alþjóðleg samtök sem meðal annars hafi að markmiði að setja tilmæli vegna aðgerða gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun gereyðingarvopna. Þá tilgreina samtökin ríki sem teljast áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð.

„Að þessu sinni er um að ræða breytingar á lista Evrópusambandsins yfir áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.“ 

Löndin átta sem felld voru af lista Evrópusambandsins og falla því einnig af lista Fjármálaeftirlitsins eru:

  • Barbados
  • Gíbraltar
  • Jamaíka
  • Panama
  • Filippseyjar
  • Senegal
  • Sameinuðu arabísku furstadæmin
  • Úganda

Heildarlista yfir þau lönd sem hér eru skráð sem áhættusöm og ósamvinnuþýð er að finna á vef Seðlabanka Íslands.

Þá er frekari upplýsingar um FATF að finna á heimasíðu samtakanna.