Takk dagur Fossa fjárfestingarbanka fer fram í ellefta sinn í dag, 27. nóvember. Á ári hverju velur starfsfólk Fossa fjárfestingarbanka það málefni sem stutt er með söfnun Takk dagsins, en þá renna allar þóknanatekjur bankans ásamt beinum framlögum frá viðskiptavinum til málefnisins.
Að þessu sinni varð Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, fyrir valinu.
„Auk Fossa taka Kauphöllin (Nasdaq Iceland) og uppgjörsfyrirtækið T Plús þátt í Takk deginum með því að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa innan dagsins og renna þau í staðinn til söfnunarinnar,“ segir í tilkynningu bankans.
Húsnæði Ljóssins sprungið
Núverandi húsnæði Ljóssins er sagt orðið of lítið og standa illa undir þjónustu við þann fjölda sem leiti til Ljóssins. Markmiðið með söfnuninni í ár er sagt að leggja Ljósinu lið við að opna nýtt stuðningssetur í nýju húsnæði.
Bent er á að þegar sjálfseignarstofnunin Ljósið varð formlega til árið 2006 hafi um 200 einstaklingar sótt þar endurhæfingu meðan á síðasta ári hafi 1.674 einstaklingar sótt þjónustu Ljóssins.

„Líkt og áður var mikill einhugur meðal starfsfólks um valið og ánægjulegt að geta stutt við þessa mikilvægu starfsemi. Það er ávallt tilhlökkunarefni að staldra við í samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila og þakka fyrir það sem vel er gert,“ segir Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.
Þátttaka í Takk deginum er frá upphafi sögð hafa verið afskaplega góð og viðburðurinn vaxið ár frá ári.
„Á síðasta ári söfnuðust 26,5 milljónir króna sem runnu til Einstakra barna. Þá hafði Takk dagurinn alls skilað ríflega 140 milljónum króna til styrkþega frá því söfnunin fór í fyrsta sinn fram árið 2015.“