Sirkusstærðfræði að baki spám um lækkun fasteignaverðs

peningamálafundur Viðskiptaráðs
Í pallborði á peningamálafundi Viðskiptaráðs sátu Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, Rannveig Eir Einarsdóttir, framkvæmdastjóri REIR Verk, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá

„Ég veit ekki hvaða sirkusstærðfræði er notuð til að halda því fram að hægt sé lækka fasteignaverð,“ sagði Rannveig Eir Einarsdóttir, framkvæmdastjóri REIR Verk á peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun.

Í erindi seðlabankastjóra, Ásgeirs Jónssonar, fyrr á fundinum hafði hann sagt skýringar á háu fasteignaverði, sem hefur áhrif á þróun verðlags, vera meðal annars takmarkað lóðaframboð og dýrara væri að byggja á þéttingarreitum

Rannveig benti á fleiri atriði sem héldi fasteignaverði uppi. Til dæmis væru gatnagerðagjöld að hækka, í Reykjavík um 100% á hvern byggðan fermetra ofanjarðar og 1000% í bílakjallara.

„Og ég veit ekki til þesss að neinn búi í bílakjallara,“ bætti hún við.

Þetta er í samræmi við tölur sem Samtök iðnaðarins birtu í morgun um þróun gatnagerðargjalda stærstu sveitarfélaga.

Og upptalningin hélt áfram hjá Rannveigu:

„Kostnaður sem byggingaraðilar þurfa að standa undir: Lóðarverð, byggingargjöld, gatnagerðargjöld, fjármagnskostnaður, skilyrði um 5% íbúða skulu vera fyrir félagsleg úrræði og 4% fari undir atvinnurými á jarðhæð. Til viðbótar þá eru lóðir lengi til meðferðar hjá skipulagsyfirvöldum. Af fimm lóðum Reir Verk hefur sú sem styst hefur verið til meðferðar verið í eitt og hálft ár. Fyrir lóðina borgaði Reir Verk 1,5 milljarð króna og á meðan beðið er tikkar fjármagnskostnaður.“

Rannveig undirstrikaði í þessari upptalningu að hún væri ekki ósammála því að bjóða uppá félagsleg úrræði í nýju húsnæði en þessi skilyrði fælu í sér aukinn kostnað sem þyrfti að horfast í augu við.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var einnig í pallborði hjá Viðskiptaráði og tók upp boltann varðandi íþyngjandi kostnað sem reglu- og lagasetning veldur almenningi.

Á Alþingi sé reynt að meta kostnað hins opinbera af lagasetningu en ekkert sé gert með að meta kostnað atvinnulífsins, sem þurfi e.t.v. að bæta við einum lögfræðingi til viðbótar til að vera í samskiptum við stjórnvöld til að uppfylla lögin.

Stjórnvöld gerðu sér oft ekki grein fyrir þessum kostnaði og til dæmis hvað það þýddi fyrir fólk að það bíði eftir afgreiðslu mála eins og dráttur á nýju skipulagi felur í sér.

Sagðist Daði vera að vinna í því að einfalda regluverk til að draga úr þessum falda kostnaði.