Skattheimta í formi gatnagerðargjalda átta stærstu sveitarfélaganna hefur hækkað gríðarlega og í sumum þeirra langt umfram hækkun almenns verðlags. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Samtaka iðnaðarins (SI) um nærri 70 prósenta skattahækkun gatnagerðargjalda stærstu sveitarfélaganna frá 2020 til 2025.

Niðurstöður könnunar samtakanna verða kynntar á Mannvirkjaþingi SI sem fer fram síðdegis í dag í Iðunni í Vatnagörðum 20 milli klukkan þrjú og sex.
Í tilkynning SI segir að þegar litið sé á þróun gatnagerðargjalda fyrir 100 fermetra íbúð í fjölbýli með stæði í bílakjallara megi sjá að hún hafi að jafnaði hækkað um 67 prósent eða 1,8 milljóninr króna á íbúð á tímabilinu frá 2020 til 2025.
„Á sama tíma hækkaði byggingarvísitalan um 37% og er hækkun gatnagerðagjalda því talsvert umfram þá hækkun. Voru gatnagerðargjöldin að jafnaði 2,7 milljón króna á hverja 100 fermetra íbúð árið 2020 en voru komin í 4,5 milljón krónur árið 2025.“
Samtökin segja gatnagerða- og byggingarréttargjöld á undanförnum árum hafa orðið sífellt stærri kostnaðarlið í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
„Fyrir fyrirtæki í íbúðaruppbyggingu skiptir fyrirsjáanleiki, stöðugleiki og hófleg gjaldtaka sveitarfélaga miklu máli. Á sama tíma hefur gjaldtaka stærstu sveitarfélaga landsins tekið miklum breytingum til hækkunar, frá árinu 2020.“
Sveitarfélögin sem greining SI tekur til eru átta stærstu sveitarfélög landsins: Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Reykjanesbær, Garðabær, Akureyri, Mosfellsbær og Árborg.
„Í greiningunni er aðeins verið að fjalla um uppbyggingu íbúða í fjölbýlishúsum en hún hefur verið lang stærsti hluti uppbyggingar á síðustu árum.“

Fram kemur að gatnagerðargjöld hafi hækkað umtalsvert í nær öllum stærstu sveitarfélögum landsins frá ársbyrjun 2020 til dagsins í dag en hækkanirnar á tímabilinu skýrist fyrst og fremst af tvennu, hækkun byggingarvísitölu og breytingum á álagningarhlutfalli sveitarfélaga.
„Hækkanir á gatnagerðargjöldum á árunum 2020-2025 ráðast annars vegar af 37% hækkun á byggingarvísitölu og hins vegar af breytingum sveitarfélaga á álagningarhlutfalli, sem getur að hámarki verið 15% af verðgrunni fyrir gatnagerðargjöld.“
Byggingarvísitala hafi hækkað um 37 prósent frá ársbyrjun 2020 og endurspeglist sú hækkun í hærri gatnagerðargjöldum allra sveitarfélaga.
„Þótt vísitöluhækkunin skýri hluta þróunarinnar hafa mörg sveitarfélög á sama tíma hækkað álagningarhlutfallið verulega, eða haldið því í hámarki, sem hefur leitt til umtalsvert meiri gjaldtöku og þannig aukið kostnað við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.“
SI benda á að sveitarfélögin gangi fram með ólíkum hætti með tilliti til heimildar þeirra til að ráð álagningarhlutfalli.
„Mosfellsbær og Akureyri eru bæði með álagningarhlutfallið í lögbundnu hámarki, 15%. Mosfellsbær hefur haldið hlutfallinu óbreyttu frá 2020 en Akureyri hefur hækkað álagningarhlutfallið í nokkrum skrefum frá árinu 2020 en hlutfallið stóð í 5% í upphafi þess árs.“
Þetta er sagt skýra stærstan hluta aukinnar gjaldtöku sveitarfélagsins á gatnagerðargjöldum á tímabilinu.
Þá hafi önnur sveitarfélög einnig hækkað álagningarhlutfall gatnagerðargjalda á tímabilinu.
„Kópavogsbær hækkaði hlutfallið úr tæpum 5% í 10% og Reykjanesbær sömuleiðis. Reykjavík hækkaði á árinu hlutfallið úr 5,4% í 10% fyrir íbúðir í fjölbýli og til viðbótar var samþykkt að innheimta gatnagerðargjald að fullu fyrir bílakjallara.“
Áður hafi verið innheimt gatnagerðargjöld af bílakjöllurum sem námu tíundaparti af fullu gjaldi á hvern fermetra. Hin sveitarfélögin rukki tíu til tuttugu og fimm prósent af fullu gjaldi á hvern fermetra.
„Hafnarfjarðarkaupstaður er eina sveitarfélagið sem lækkaði álagningarhlutfallið á tímabilinu sem um ræðir. Framan af var hlutfallið í lögbundnu hámarki en árið 2022 var það lækkað í 6%.“
Hæst eru gatnagerðargjöldin sögð í Mosfellsbæ og á Akureyri. Þar séu gjöld miðað við hundrað fermetra íbúð í fjölbýli með stæði í bílakjallara sex milljónir króna á íbúð.
„Á Akureyri, þar sem gatnagerðargjöldin hafa hækkað mest á tímabilinu, nemur hækkunin um 4,6 milljónum króna. Í Mosfellsbæ hafa gjöldin hækkað um ríflega 1,6 milljónir króna, alfarið vegna hækkunar á byggingarvísitölu. Gatnagerðargjöld hækka næst mest í Reykjavík á tímabilinu, úr 1,5 milljónum króna í 4,7 milljónir, eða um tæplega 3,2 milljónir króna.“
Þá hafi gjöldin einnig hækkað umtalsvert í Kópavogi og Reykjanesbæ, eða um rúmar 2,5 milljónir króna á íbúð.
„Í Árborg hafa gatnagerðargjöld hækkað um ríflega 1,1 milljón og í Garðabæ um 900 þúsund. Þá er Hafnarfjörður eina sveitarfélagið þar sem gjöldin hafa lækkað á tímabilinu, eða um nær 2 milljónir króna. Er það vegna lækkunar á álagningarhlutfallinu, úr 15% í 6%.“
SI benda á að gatnagerðargjöld af bílakjöllurum hafi einnig hækkað, sér í lagi í Reykjavíkurborg.

„Ef miðað er við að eitt bílastæði fylgi hverri íbúð þá hefur gatnagerðargjald á hverja íbúð hækkað úr 37 þúsund kr. í 942 þúsund kr. eftir nýlegar breytingar á gjaldskrá borgarinnar.“
Að auki hafi verið innleidd ný gjöld á bíla og hjólageymslur ofanjarðar, en nú sé orðin skylda að byggja hjólageymslur.