Landsvirkjun hættir við áform um vetnisframleiðslu

Batni markaðsaðstæður útilokar Landsvirkjun ekki að skoða á ný mögulega þátttöku í þróun og framleiðslu á grænu vetni og rafeldsneyti.

Vetnisdælustöð í Japan.
Vetnisdælustöð í Japan. Mynd/K. K. Yam Amot á Unsplash

Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta í bili að taka þátt í þróun á grænu vetni til innlendra orkuskipta. Á vef fyrirtækisins kemur fram að síðustu ár hafi Landsvirkjun kannað möguleika á að taka þátt í slíkri framleiðslu í samstarfi við valda aðila.

„Hugmyndin með verkefninu var að framleiða grænt vetni úr vatni og endurnýjanlegri raforku, með það markmið að auka framboð á vetni sem endurnýjanlegu eldsneyti fyrir orkuskipti í samgöngum og iðnaði,“ segir þar.

Fram kemur að verkefnið hafi enn verið á þróunarstigi og engar ákvarðanir hafi verið teknar um fjárfestingu í vetnisframleiðslu.

„Ástæða þess að við leggjum verkefnið á hilluna er fyrst og fremst sú að áætluð eftirspurn eftir grænu vetni til orkuskipta hérlendis næstu ár nægir að okkar mati ekki til að gera verkefnið arðbært og væntingar um lækkun kostnaðar við vetnistækni hafa ekki gengið eftir.“

Landsvirkjun segir að meðal annars hafi framþróun í rafhlöðutækni síðustu ár dregið úr væntingum fyrirtækisins um eftirspurn eftir vetni til landsamgangna.

„Landsvirkjun hefur þó enn trú á því að grænt vetni og rafeldsneyti geti leikið hlutverk í innlendum orkuskiptum til lengri tíma litið og útilokar ekki að skoða verkefnið á ný síðar, ef markaðsaðstæður batna.“

fyrirtækið segir verkefnið hafa verið unnið í samræmi við nýlega stefnu Landsvirkjunar um rafeldsneyti og loftslagstengda viðskiptaþróun, þar sem fram komi að Landsvirkjun muni skoða möguleika til þátttöku í þróun smærri vetnisverkefna eða sölu á raforku til þeirra.

„Þrátt fyrir að við metum þetta verkefni ekki fýsilegt sem stendur mun Landsvirkjun áfram fylgjast með framvindu mála og búa sig undir mögulegan vöxt í vetni og rafeldsneyti ef aukin eftirspurn verður eftir slíku endurnýjanlegu eldsneyti.“

Þá segist Landsvirkjun stefna á að vera áfram í forystu í loftslags- og umhverfismálum og að áfram sé unnið markvisst að því að styðja við orkuskipti á Íslandi með fjölbreyttum leiðum.

„Enda er framtíðarsýn okkar sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku,“ segir á vef Landsvirkjunar.