Alþjóðanet bókhaldstæknifyrirtækisins Unimaze nær eftir stækkun til tæplega 60 landa, ásamt samstarfi og tengingu við öll helstu bókhalds- og tæknifyrirtæki landsins. Í tilkynningu fyrirtækisins er Unimaze sagt eitt af leiðandi fyrirtækjum í Evrópu í sjálfvirkni viðskiptaferla og stöðlum sem tengjast rafrænni skeytamiðlun.
Haft er eftir Bergljótu Mist Georgsdóttur, sem sinnt hefur stöðu markaðsfulltrúa Unimaze síðastliðið ár, að rafræn skeytamiðlun sæki sífellt í sig veðrið og þar sé Unimaze í fararbroddi.
„Við höfum lagst í markvissar umbætur á undanförnu ári. Við uppfærðum birgjavefinn okkar, Supplier Portal, betrumbætum ferla hjá Digitizer sem nú skilar PDF reikningum inn í bókhaldið sem rafrænum reikning með yfir 99% nákvæmni,“ segir hún.
Þá hafi mikil vinna verið lögð í að efla samþykktarkerfið fyrirtækisins, Approver.
Bergljót er sögð Akureyringur sem útskrifast hafi með M.Sc. í markaðs- og alþjóðaviðskiptafræði og hafi mikla reynslu af markaðsstörfum, sér í lagi í gegnum bílageirann þar sem hún hafi fengið áhuga á „B2B alþjóðlegri markaðssetningu.“
Bergljót Mist ber ábyrgð á allri markaðsstarfsemi Unimaze, allt frá stefnumótun til framkvæmdar.
„Framundan eru miklar áskoranir í alþjóðaumhverfinu og við erum í stakk búin til að takast á við þær og og við ætlum að halda áfram að leiða þróunina á því sviði,“ segir hún.