Icelandic Food Company, eða IFC, hefur ráðið þrjá nýja stjórnendur til fyrirtækisins, Sigurlaug Þorkelsson, Sigurð Helga Tryggvason og Pál G. Arnar.
Fram kemur í tilkynningu að ráðningunum sé ætlað að fylgja eftir og stuðla að frekari vexti í framleiðslu og sölu á tilbúnum réttum og fiskvörum sem seld eru í verslunum Krónunnar, en IFC er dótturfyrirtæki Krónunnar. Hjá því starfa um 35 manns.
Sigurlaugur Þorkelsson, sem var ráðinn sölu- og rekstrarstjóri hjá IFC, er sagður koma til fyrirtækisins frá Icelandair þar sem hann hafi starfað frá árinu 2017, síðast sem deildarstjóri á flugrekstrarsviði.
„Einnig hefur Sigurlaugur reynslu úr upplýsingatækni innan Advania og síðar Origo í hýsingar- og rekstrarráðgjöf. Sigurlaugur er með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.
Þá hafi Sigurður Helgi Tryggvason tekið við sem framleiðslustjóri. Hann hafi áður verið yfirkokkur og yfirmaður í flugeldhúsi Icelandair, auk þess sem hann búi að reynslu úr veitingageiranum sem yfirkokkur og hafi verið vaktstjóri hjá veitingastöðum, svo sem hjá Tapashúsinu og Fiskfélaginu.
Páll G. Arnar hafi svo verið ráðinn innkaupa- og birgðastjóri IFC.
„Páll er iðnaðartæknifræðingur að mennt og hefur til fjölda ára sérhæft sig í birgðastýringu og aðfangakeðjum. Áður hefur hann starfað við hagræðingu framleiðsluferla hjá fyrirtækjum á borð við Ekruna og Bako-Ísberg.“
Haft er eftir Einari Þór Einarssyni, framkvæmdastjóra Icelandic Food Company, að fyrirtækinu sé mikið ánægjuefni að fá til liðs við sig svo reynslumikið stjórnendateymi á spennandi tímum.
„Með ráðningunum styrkjum við innviði IFC og stöndum betur að vígi til að leiða áfram þróun og vöxt á íslenskum matvælamarkaði, þar sem vörumerkin Matseðill og Fiskverzlun Hafliða eru í fararbroddi,“ segir hann.