SI segja Seðlabankann sýna framsýni með vaxtalækkun

Í Peningamálum Seðlabankans, sem komu út samhliða ákvörðun peningastefnunefndar í morgun, kemur fram að bankinn lækkar hagvaxtarspá sína talsvert, eða úr 2,3 prósentum í 0,9 prósent á þessu ári og úr 2,1 prósenti í 1,6 prósent fyrir það næsta. 

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. Mynd/Seðlabankinn

Samtök iðnaðarins (SI) fagna ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans frá því í morgun um að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig.

Í tilkynningu samtakanna er lækkunin sögð mikilvæg viðbrögð bankans við viðsnúningi í efnahagslífinu og þeirri röð áfalla sem dunið hafi á útflutningsgreinum hagkerfisins, ásamt því umróti sem skapast hafi á innlendum lánamarkaði í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar.

Höfðu kallað eftir vaxtalækkun

„Að mati SI sýnir ákvörðunin að nefndin er framsýn í störfum sínum, enda fylgja bættar verðbólguhorfur lakara efnahagsútliti. Að mati bankans er spenna horfin úr hagkerfinu og slaki kominn í hennar stað, sem spáð er að haldist næstu árin,“ segir í tilkynningunni.

Samtök iðnaðarins höfðu kallað eftir lækkun lækkun vaxta, en í greiningu samtakanna, þar sem farið er yfir helstu rök fyrir lækkun, er bent á að röð áfalla í útflutningsgreinum, auk merkja um stöðnun og samdrátt í ýmsum greinum hagkerfisins hafi dekkt efnahagshorfur talsvert frá því að nefndin ákvað vexti síðast. 

„Auk þess hafa SI bent á að breytingar á húsnæðislánamarkaði sem urðu í kjölfar ofangreinds dóms hafa aukið peningalegt aðhald. Seðlabankinn tekur undir þessi sjónarmið.“ 

Verðbólga hjaðni hraðar á næsta ári

Í Peningamálum Seðlabankans, sem komu út samhliða ákvörðun peningastefnunefndar í morgun, kemur fram að bankinn lækkar hagvaxtarspá sína talsvert, eða úr 2,3 prósentum í 0,9 prósent á þessu ári og úr 2,1 prósenti í 1,6 prósent fyrir það næsta.  

Seðlabankinn er einnig sagður taka undir þau rök SI að með minni hagvexti aukist líkurnar á því að verðbólgumarkmiðinu verði náð fyrr.

„Bankinn reiknar með að verðbólga hjaðni hraðar á næsta ári en hann spáði áður og að verðbólgumarkmiði hans verði náð á árinu 2027.“  

Í tilkynningu SI eru samtökin sögð hafa bent á að bættar verðbólguhorfur gæfu nefndinni svigrúm til lækkunar stýrivaxta, sem nú hafi orðið raunin.

„Samtökin töldu að án lækkunar væri hætta á frekari erfiðleikum og að verðbólgumarkmiðinu yrði náð með óþarflega miklum fórnarkostnaði fyrir hagkerfið. Raunar ræddi peningastefnunefnd hættuna á því að halda taumhaldi of þéttu of lengi á síðasta fundi sínum í byrjun október. Unnt er að ná verðbólgu niður án þess að viðhalda jafn háu vaxtastigi.“  

Brýnt að lækkunarferlið haldi áfram

Samtökin segja helstu orsakir verðbólgu vera hækkandi húsnæðiskostnaðr og launaþróun. 

„Það er brýnt að ráðast í umbætur á umgjörð húsnæðismarkaðar með fjölgun íbúða að leiðarljósi sem og umbætur á umgjörð vinnumarkaðar. Með slíkum umbótum væri stutt við stöðugleika til langs tíma.“ 

Þá telja Samtök iðnaðarins mikilvægt að vaxtalækkunarferlinu verði haldið áfram á næsta ári. 

„Stýrivextir bankans eru nú 7,25% eftir lækkunina í morgun og því enn talsvert háir og hátt yfir verðbólgu og verðbólguvæntingum. Aðhaldsstig peningastefnunnar er í því ljósi enn talsvert.“

SI segja mikilvægt að peningastefnunefndin dragi úr peningalegu aðhaldi á komandi mánuðum, en næsta vaxtaákvörðun nefndarinnar er á dagskrá 4. febrúar næstkomandi.