Airbus og Østnes Helicopters, opinber dreifingaraðili fyrir Airbus þyrlur á Norðurlöndum, hafa samið um kaup Østnes á tíu Airbus H125 þyrlum. Fram kemur í tilkynningu Airbus að greint hafi verið frá samningnum á European Rotors sýningunni í ár. Alls hafi fyrirtækið þá pantað 14 þyrlur á árinu.
Stine Østnes, sölustjóri Østnes Helicopters, segir í tilkynningunni að viðskiptavinir fyrirtækisins þurfi bæði áreiðanlegar og fjöhæfar þyrlur, sem sinnt geti margvíslegum verkefnum, allt frá lagningu raflína til farþegaflutninga.
„H125 uppfyllir allar þessar kröfur og við sjáum stöðuga og mikla eftirspurn eftir þessari þyrlu á norræna markaðnum. Framsýn innkaup sem þessi tryggja að við getum haldið afhendingartíma stuttum og boðið viðskiptavinum okkar besta framboð á vinsælustu einshreyfilsþyrlu heims,“ segir hún.
Þá segir Thomas Hein, svæðisstjóri Evrópu hjá Airbus Helicopters, að stöðug eftirspurn eftir H125 á Norðurlöndum endurspegli einstaka fjölhæfni og frammistöðu þyrlunnar.
„H125 er hönnuð til að skara fram úr við krefjandi aðstæður. Samanlögð pöntun upp á 14 vélar 2025 staðfestir stöðu hennar sem valkost númer eitt fyrir viðskiptavini á Norðurlöndum. Við erum stolt af því að halda áfram vegferð vaxtar- og samstarfs með Østnes Helicopters,“ segir hann.
Østnes Helicopters er sagt hafa byggt upp sterka stöðu á þyrlumarkaði á Norðurlöndum og haft haft milligöngu um sölu á yfir 400 þyrlum, bæði nýjum og notuðum. Viðhaldsdeild fyrirtækisins sé með með full MRO-réttindi (e. Maintenance, Repair and Overhaul) fyrir H120-, H125- og H130-þyrlur, auk fulls stuðning við H145 þyrluna.
„Á Norðurlöndum eru yfir 130 H125 þyrlur, sem sinna aðallega verkefnum tengdum flutningum og loftvinnu. Á heimsvísu eru yfir 4.300 þyrlur úr H125 fjölskyldunni í notkun við krefjandi aðstæður,“ segir í tilkynningunni.
H125 þyrlan er sögð hluti af hinni þekktu Ecureuil tegund, sem sé markaðsleiðtogi í flokki millistórra einshreyfilsþyrla. Árið 2024 hafi markaðshlutdeild Ecureuil þyrla náð 73 prósentum.