Verri afkoma ferðaþjónustufyrirtækja og samdáttur í bílasölu skýra að stórum hluta versnandi afkomu fyrirtækja milli áranna 2023 og 2024.
Afkoma fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu dróst saman um 5,3 prósent árið 2024, samkvæmt nýrri samantekt Hagstofu Íslands.
Ástæðan er einkum sögð hafa verið dræmur tekjuvöxtur, en heildartekjur rekstraraðila hafi aðeins aukist 137 milljarða króna, eða tæplega tvö prósent á árinu.
„Þetta var nokkuð minni vöxtur en árið 2023 þegar tekjur jukust um 8,2% þar sem mikill vöxtur í ferðaþjónustu, bílasölu og byggingarstarfsemi það árið vó á móti samdrætti í útflutningsgreinum og auknum fjármagnskostnaði.“
Árið 2024 hafi þessi þróun hins vegar snúist við þar sem afkoma í ferðaþjónustu hafi dregist umtalsvert saman og tekjur í bílasölu minnkuðu mikið.

„Þá batnaði afkoma verulega í málmframleiðslu og tækni- og hugverkaiðnaði en dróst samt sem áður saman í sjávarútvegi. Afkoma af fjármagnsliðum batnaði nokkuð en almenn aukning rekstrargjalda umfram tekjuvöxt dró afkomuna niður.“
Fram kemur að í flestum greinum hagkerfisins hafi aukning tekna verið minni en hækkun verðlags, en vísitala neysluverðs hafi hækkað um 5,8 prósent á árinu 2024.
Ítarlegri greiningu á þróuninni er að finna í samantekt Hagstofunnar.