Samtök iðnaðarins kalla eftir lækkun stýrivaxta

Í nýrri greiningu SI segir að röð áfalla í burðarstólpum útflutnings muni draga úr útflutningstekjum hagkerfisins og hagvexti. Enn ríki óvissa um hversu mikil áhrifin verði en ljóst sé að þau muni hafa talsverð neikvæð áhrif á framleiðslugetu þjóðarbúsins.

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands. Mynd/Google Earth

Samtök iðnaðarins (SI) telja að peningastefnunefnd Seðlabankans eigi að lækka stýrivexti, að því er fram kemur í nýrri greiningu samtakanna. Vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar verður tilkynnt 19. nóvember næstkomandi.

Meðal ástæðna sem horfa ætti til sem raka fyrir lækkun benda samtökin á röð áfalla í útflutningsgreinum, auk merkja um stöðnun og samdrátt í ýmsum greinum hagkerfisins, þar á meðal iðnaði, sem dekkt hafi efnahagshorfur talsvert frá því að nefndin ákvarðaði vexti síðast.

Horfur á minni hagvexti auki einnig líkur á því að verðbólgumarkmiðinu verði náð fyrr, og sennilega strax á næsta ári að mati SI. Þar með sé komið svigrúm til lækkunnar stýrivaxta.

Án lækkunar sé líka hætta á frekari erfiðleikum og að verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð með óþarflega miklum fórnarkostnaði fyrir hagkerfið.

Samtökin segja unnt að ná niður verðbólgu án þess að viðhalda jafn háu vaxtastigi.

„Aðhald peningastjórnunnar hefur dregið úr vexti hagkerfisins. Stöðnun hefur verið í landsframleiðslu og atvinnuleysi farið vaxandi. Sýnileg merki eru um samdrátt í öllum megingreinum iðnaðar, sem sést meðal annars í því að velta hefur dregist saman og starfandi fólki fækkað,“ segir í greiningu samtakanna.

Bent er á að stýrivextir Seðlabankans séu nú 7,5 prósent og verðbólga 4,3 prósent.

„Aðhaldsstig peningastjórnarinnar er því talsvert, mælt út frá raunstýrivöxtum. Aðhaldsstigið hefur haldist svipað frá upphafi síðastliðins árs þrátt fyrir að verðbólga hafi lækkað, spenna snúist í slaka og efnahagshorfur versnað.“