Hafnarfjarðarkortið, nýtt gjafa- og inneignakort, verður gefið út af Markaðsstofu Hafnarfjarðar í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ fyrir jól.
Í tilkynningu bæjarins er kortið sagt frábær gjöf og bent á að eigendur þess greiði ekki skatt af kortinu eins og gildi fyrir bankakort. Kortið er fáanlegt frá 5. desember og til sölu í Jólaþorpinu, þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar og á netinu.
Haft er eftir Þóru Hrund Guðbrandsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Hafnarfjarðar, að Hafnarfjarðarkortið sé lykillinn að Hafnarfirði.
„„Með kortinu ertu með bæinn í vasanum – já, eða lófa þínum og getur verslað við hafnfirsk fyrirtæki,“ segir hún.
Þá er haft eftir Valdimari Víðissyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, að sveitarfélagið hafu séð mörg tækifæri í kortinu.
„Hér í Hafnarfirði er mikil samheldni, frábær fyrirtæki og því afar skemmtilegt að við eigum okkar eigið hagkerfi, ef svo má segja,“ segir hann.
Þá segir hann kortið tækifæri til að kynna hafnfirska verslun um leið og stutt sé við það að verslað sé í heimabyggð.
„Er líka stoltur af því að Hafnarfjörður er fyrst sveitarfélaga að fara þessa leið.“
Hafnarfjarðarkortið er sagt virka eins og gjafakort Kringlunnar, sem margir þekki, en leiksvæðið sé verslanir, þjónustufyrirtæki, kaffi- og veitingahús Hafnarfjarðar. Setja megi Hafnarfjarðarkortið bæði í símann (í rafrænt veski) eða fá það í gjafabréfi.
Þá segir Þóra inneignina á kortinu bíða eftir því að vera notuð í þeirri verslun sem henti hverjum og einum og fari því ekki forgörðum. Þá bjóði sumar verslanirnar og þjónustuveitendur betri kjör með notkun kortsins.