Icelandair segir upp 38 starfsmönnum

Flugvélastél Icelandair
Mynd/Icelandair Group

Icelandair hefur gengið frá starfslokum við 38 starfsmenn. Í tilkynningu flugfélagsins kemur fram að um sé að ræða starfsfólk í ýmsum deildum, aðallega á skrifstofu félagsins í Hafnarfirði.

„Þessar breytingar eru liður í hagræðingaraðgerðum, en um þessar mundir er höfuðáhersla lögð á að bæta afkomu félagsins,“ segir þar.

Fram kemur að félagið hafi gripið til fjölmargra aðgerða undanfarin misseri. Þar á meðal er nefnd aðlögun leiðakerfis flugfélagsins að markaðsaðstæðum, fækkun flugvéla í rekstri um tvær og ákvörðun um að hætta rekstri breiðþotna á næsta ári, auk ýmissa umbótaverkefna þvert á fyrirtækið sem hafi skilað sér í aukinni skilvirkni og sjálfvirknivæðingu.

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að ákvarðanir sem þessar séu alltaf mjög erfiðar.     

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Þær hafa áhrif á starfsfólk sem kveður og þau sem eftir verða og sjá á eftir góðum vinnufélögum. Undanfarin misseri höfum við verið að velta við öllum steinum til þess að snúa rekstri félagsins við. Það er nauðsynlegt til þess að Icelandair geti tekist á við sveiflur í síbreytilegu umhverfi flugrekstrar, til að tryggja samkeppnishæfni og bæta afkomu félagsins til framtíðar,“ segir hann.

Einn lið í þessari vegferð segir hann vera einföldun skipulags og fækkun verkefna sem því miður leiði til þeirra breytinga í starfsmannahópi félagsins sem nú hafi verið kynntar.

„Ég vil þakka öllu því góða fólki sem nú lætur af störfum fyrir þeirra framlag til Icelandair og óska þeim alls hins besta,“ segir hann.