Verðbólga mælist 4,3 prósent

Smápeningar, klink, íslensk mynt. Krónur. ISK.
Smápeningar á borði. Mynd/ÓKÁ

Verðbólga jókst um 0,47 prósent á milli mánaða samkvæmt nýrri mælingu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs.

„Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,3%.“

Í október mældist vísitalan 661,4 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði minna og er 527,7 stig. Breyting hennar frá september er um 0,36 prósent.

„Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,9% (0,19%).“

Hagstofan segir rétt að benda á, í ljósi umræðu um áhrif gjaldþrots eins flugfélags á verð hjá öðrum flugfélögum, að flugverð í vísitölu neysluverðs sé mælt með tveggja, fjögurra og átta vikna fyrirvara og mælingarnar notaðar til útreikninga í þeim mánuði sem ferðin á sér stað.

„Þetta þýðir að flugverð sem notað var til útreikninga í október var mælt í ágúst, september og október þannig að einungis hluti mælinganna fór fram eftir að fréttir bárust af gjaldþroti Play.“