Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, er meðal fimm kvenna sem valdar hafa verið í úrslit í kjöri konu ársins á stærsta alþjóðlega viðburði lyfjaiðnaðarins sem nú stendur yfir í Þýskalandi. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur einnig fram að það hafi tilkynnt um markaðssetningu á sjöunda eigin þróaða lyfinu á alþjóðlegum markaði.
„Fulltrúar Coripharma taka nú þátt í stærsta alþjóðlega viðburði lyfjaiðnaðarins sem fram fer í Frankfurt í Þýskalandi. CPHI (Convention on Pharmaceutical Ingredients) er árleg ráðstefna, sýning og tengsla- og söluviðburður og eru fyrirtæki frá yfir 170 löndum með fulltrúa þar,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að vel á þriðja þúsund fyrirtæki séu í ár skráð til leiks og að búist sé við yfir 60 þúsund gestum á viðburðinum.
„Auk þess að hitta bæði núverandi og verðandi viðskiptavini, tengjast lykilaðilar í greininni á þessum viðburði þar sem einstakt tækifæri gefst til að kynna og selja eigin þróuð lyf eða hugvit á þessu sviði.“
Eins segir að veitt séu verðlaun í margvíslegum flokkum til fyrirtækja og einstaklinga sem þyki hafa skarað fram úr á árinu.
„Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, var þannig tilnefnd sem kona ársins („Woman of the Year“) og var meðal fimm kvenna sem valdar voru í úrslit í kjörinu og sýnir það svart á hvítu þá miklu virðingu sem Jónína nýtur innan geirans.“
Coripharma greinir einnig frá markaðssetningu á sínu sjöunda eigin þróaða lyfi.
„Tolvaptan hefur þegar verið sett á markað af stórum viðskiptavinum í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi, en lyfið er notað við lágum natríumgildum í blóði (hyponatremia).“
Fram kemur að á næstu mánuðum verði unnið að áframhaldandi markaðssetningu um alla Evrópu. Áætlað heildarverðmæti á næsta ári sé um þrjár milljónir evra.