Raftækjaverslunin ELKO hefur fengið leyfi og hafið veitingu neytendalána á vef sínum. Fyrirtækið er skráð sem lánveitandi á vef Neytendastofu. Önnur fyrirtæki með sambærilegt leyfi eru Síminn Pay ehf., Greiðslumiðlun ehf., Núnú Lán ehf., Personal Account ehf. og Brúa ehf.
Í tilkynningu ELKO er vakin athygli á að verslunin hafi tekið í notkun nýja fjártæknilausn undir heitinu Snjallgreiðslur ELKO.
„Um er að ræða fjármögnunarleið sem gerir viðskiptavinum kleift að fjármagna kaup sín á einfaldan, öruggan og sveigjanlegan hátt á hagstæðum kjörum,“ segir þar.
Snjallgreiðslur ELKO eru sagðar samskonar fjármögnunarleið og félagið hafi boðið upp á í gegnum þriðja aðila til fjölda ára og lausnin sögð hönnuð með þarfir viðskiptavina í huga. Í boði sé örugg og gagnsæ leið til að skipta greiðslum niður án flókins umsóknarferlis.
Þá feli þessi nýja þjónuta í sér að allt sem viðkemur lántökunni fari fram á einum stað og ekki þurfi að leita til utanaðkomandi lánafyrirtækis til að breyta eða fella niður lán, ef kemur til þess að skila þurfi vöru eða skipta.
Fram kemur að þegar sótt sé um neytendalán í fyrsta sinn þurfi að fara í gegnum stutt ferli sem taki nokkrar mínútur.
„Er þar um að ræða áreiðanleikakönnun og lánshæfimat sem er tengt við gagnagrunn Creditinfo.“
Stöðu lánaheimildar og lána megi svo sjá á vef fyrirtækisins undir Mínum síðum, meðan greiðsluseðlar berist beint í heimabanka.
„Meðal þess sem Snjallgreiðslur ELKO bjóða upp á er nýjung í formi 30 daga greiðslufrests án aukakostnaðar. Einnig er boðið upp á 2-12 mánaða vaxtalaus lán og 13-36 mánaða neytendalán.“
Fram kemur að Snjallgreiðslur ELKO séu þegar í boði í vefverslun elko.is og verði á næstu mánuðum innleiddar í verslunum ELKO um allt land.
Í tilkynningunni er haft eftir Óttari Erni Sigurbergssyni, framkvæmdastjóra ELKO, að um sé að ræða viðleitni til að einfalda líf viðskiptavina verslunarinnar og gefa þeim kost á hagstæðri fjármögnun.
„Með Snjallgreiðslum ELKO er hægt að velja greiðslufyrirkomulag sem hentar hverjum og einum, hratt, auðveldlega og á sanngjörnum kjörum,“ segir hann.