Íslensk bjórdós varð fyrir valinu sem besta dós í heimi

RVK Bruggfélag, Hönnunarstofan Kalsson Wilker og dósaframleiðandinn Nomoq, hlutu óvænta upphefð á verðlaunahátíð The Canmaker sem fram fór á Írlandi í gær..

Bjórinn Jólabrugg frá RVK Bruggfélagi.
Jólabrugg frá RVK Bruggfélagi sem fékk verðlaun fyrir umbúðahönnun. Mynd/FB-RVK Bruggfélag

RVK Jólabrugg frá RVK Bruggfélagi hefur verið valin „besta dós í heimi 2025“ á verðlaunahátíð tímaritsins The Canmaker. RVK Bruggfélag greinir frá þessu á Facebook síðu sinni.

„Við erum eiginlega í smá sjokki á þessum fína degi,“ segir þar.

Fram kemur að verðlaunin séu veitt fyrir framúrskarandi hönnun og gæði úr alþjóðlegum innsendingum frá stórum og smáum framleiðendum hvaðanæva úr heiminum.

„Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk dós hlýtur þennan heiður.“

Í færslu RVK Bruggfélags er áréttað að aðstandendur þess séu afskaplega stoltir af viðurkenningunni og þakklátir þeim sem komu að verkefninu:

„RVK Teyminu, Hönnunarstofunni Karlsson Wilker, framleiðandanum Nomoq og öllum sem hjálpuðu okkur að gera þessa dós að veruleika.“

Á vef The Canmaker segir að tilkynnt hafi verið um sigurvegara í The Canmaker Cans of the Year Awards 2025 á verðlaunahátíð sem farið hafi fram á ráðstefnu Canmaker á Crowne Plaza Dublin Airport hótelinu í Dyflinni á Írlandi.

Verðlaunin fyrir dós ársins hafi verið veitt NOMOQ í þýskalandi fyrir stafrænt prentaða 330 millilítra áldós með afgerandi mynstri og mattri málmáferð sem framleidd hafi verið fyrir RVK Bjórfélag á Íslandi undir RVK Jólabrugg bjórinn.

Sjá má ágrip af verðlaunahátíðinni sjálfri á vefsíðu The Canmaker.