Seðlabankar Íslands og Kína hafa endurnýjað gjaldmiðlaskiptasamning sín á milli. Fram kemur í frétt Seðlabanka Íslands að sambærilegur samningur hafi upphaflega verið gerður árið 2010. Gjaldmiðlaskiptasamningurinn var svo endurnýjaður 2013, 2016 og 2020.
„Fjárhæð samningsins er 3,5 milljarðar kínverskra júana eða um 60 milljarðar íslenskra króna. Samningurinn gildir í fimm ár og verður mögulegt að endurnýja hann að þeim tíma liðnum,“ segir í frétt Seðlabankans.
Undirritun samningsins fór fram fimmtánda október síðastliðinn í Washington DC í Bandaríkjunum. Þá fór þar fram ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Undir samninginn skrifuðu Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Pan Gongsheng seðlabankastjóra Kína.
Tilgangur samningsins er í frétt Seðlabankans sagður að efla tvíhliða viðskipti landanna og styðja við beina fjárfestingu, ásamt því að efla fjármálaleg tengsl milli landanna.