Heldur færri fyrirtæki voru nýskráð á þriðja ársfjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra. Á sama tíma fjölgaði gjaldþrotum virkra fyrirtækja um ríflega tvo þriðju.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri samantekt Hagstofu Íslands um nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja.
„Á þriðja ársfjórðungi 2025 voru nýskráð 806 fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af 722 einkahlutafélög. Til samanburðar voru 815 nýskráningar á þriðja ársfjórðungi 2024.“
Flestar nýskráningar eru sagðar hafa verið í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 130 sem er fækkun um átta prósent miðað við sama tímabil í fyrra.
Þá kemur fram að á þriðja fjórðungi þessa árs hafi 113 fyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta sem er 74 prósenta aukning frá sama tímabil 2024 þegar 65 fyrirtæki urðu gjaldþrota.
„Af þeim 113 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 45 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2024.“
Gjaldþrotum virkra fyrirtækja hefur því fjölgað um 36 prósent á milli ára, samkvæmt tölum Hagstofunnar.
„Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á þriðja fjórðungi 2025 störfuðu að jafnaði 751 starfsmenn árið 2024. Eftir atvinnugreinum störfuðu flestir í einkennandi greinum ferðaþjónustu, eða 589, og í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 88.“
