Nýr forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar hjá ELKO

Hanna María Hermannsdóttir
Hanna María Hermannsdóttir, forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar ELKO.

Hanna María Hermannsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar hjá ELKO. Fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins að hún búi að yfir tíu ára starfsreynslu af verkefna- og breytingastjórnun í flóknu rekstrarumhverfi.

Fyrir komuna til ELKO er Hanna María sögð hafa starfað sem deildarstjóri hjá Isavia og leitt þar fjölbreytt verkefni tengd innleiðingu nýrra ferla, búnaðar og reglugerða á Keflavíkurflugvelli.

„Ég hlakka mjög til að takast á við spennandi verkefni hjá ELKO og til leggja mitt af mörkum til áframhaldandi vaxtar og þróunar fyrirtækisins,“ segir hún í tilkynningunni.

Fram kemur að Hanna María hafi útskrifast með M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2015 og lokið B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá sama skóla 2012.